Leita í fréttum mbl.is

Langatöng? Blómurinn í súrnum? Hvað er að frétta?

fokkAuðvitað hefir ungfrú Reykfjörð lítið um tímabært andlát Uniteds Sílíkóns að segja. Þó mundi hún eftir að vera sorgmædd yfir þeim sem störfuðu hjá Unitedi þessum, en þeir mega þó vera manna fegnastir að losna jafn óheilnæman félaga og Unitedet þenna. Meira veit ungfrú Reykfjörð ekki um hinn látna og samt er hún þó þerfaldur ráðherra að titlatogi. 

So er það langatöngin. Það fara sögur af henni, ekki allar fallegar. Betur færi að umrædd langatöng eyddist upp í sýru. Og þá kemur í hugann húsfreyjan að Kollufelli, hún setti nefnilega eitt haustið allan blómurinn í geymissýru, eða var það saltpéturssýra, en allt um það þá var blómurinn horfinn úr tunnunni innan fjögurra vikna, en þá gætti húsfreyjan að slátri sínu og varð undrandi að grípa í tómt. En ég segi nú enn og aftur: Hvað kemur þessi þremils langatöng ungfrú Reykfjörð við? Varla nokkurn skapaðann hlut -, eða hvað? En þa e auvita leitt þegar stór, stór verkefni sem fjárfestar hafa sett fjármuni í fara sona. Já, okkur varðar ekkert um neina helvítis fjárfesta til eða frá, þeir hafa hvort eð er aldrei unnið fyrir fjármununum sem þeir gambla með; það vóru aðrir sem fyrir fjármununum unnu í sveita síns andlitis.

Okkur varðar heldur ekkert um þó ríkisstjórnarnefnan sjálf fari í þrot, gjaldþrot, og ráðherrarnir verði boðnir upp, hver af öðrum, eins og búpéningr fátæklinga í gamla daga. Við vitum þó, að andvirði fyrir hvurn ráðherra nær ekki því sem fengist fyrir fjórtán vetra á. Og aunginn þarf að missa niðrum sig brækurnar eður brjóta og bramla á sér löngutöngina, þó ekki fengist so sem einseyrings virði fyrir Reykfjörð og hendes venner í ríkisstassjóninni.   


mbl.is „Leiðinlegt þegar þetta fer svona“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband