Leita í fréttum mbl.is

Plantin plómi, Tegódúra Trump og Manni bæjarstjóri í Koppavogi

auð1Það hlaut að koma að því að Sjálfstæðisslektið í Koppavogi segði Tegódúru Trump upp aukaaðild hennar að Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn er nefnilega dýrgripur, sem ekki er ætlaður hvurjum sem er, en ekki safnþró fyrir hálfóða og ósiðaða lukkuriddara, sem þrá ekkert heitar en fá að komast að kjötkatlinum og éta upp úr honum alla bestu bitana.

Svo sjálfstæðisslektinu í Koppavogi til boða mun betri kostur en Tegódúru Trump þar sem er framsóknarpilturinn, sem er svo mikill plantin plómi og undur líkur Guðmundi Gúðmúndsen kaupmanni í útliti. Enn fremur er framsóknarpilturinn mun röskari lukkuriddari og vandræðaskjóni en Tegódúra og er því fremri henni að öllu leyti þegar kemur að aukaaðild að sjálfstæðissamtökunum miklu. Nú, einhverjir eru að fjargviðrast um, að brottrekstur Tegódúru frá kjétkatli Sjálfstæðisflokksins sé nokkurskonar margföld rýtingsstunga vondra íhaldskvikinda í bak Manna bæjarstjóra, sem óvíst er að hann lifi af.

So er nafn flokks Tegódúru Trump í Koppavogi verðugt íhugunarefni, en fyrirbærið heitir víst BF Viðreisn, sem vekur upp spurningu þess efnis hvort þessi BF Viðreisn sé eitthvað skyld BM Vallá, jafnvel náskyld. Jú, bæði Tegódúra og MB Vallá fóru sona dálítið hallloka út úr Hruninu og sonur gamla Vallárdólgsins er mér sagt að sé varaformaður Viðreisnar Benza og braskaranna. Allt er þetta hið kynlegasta mál, hlaðið ýmislegum tilbrigðum við spillingu, græðgi og hagfræðigéðbilun.  


mbl.is Lít á þetta sem uppsagnarbréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband