Leita í fréttum mbl.is

Hinn geysivinsæli Furtadó raskatsvíkkunarpéníngalæknir

crazyFurtado er nútíma péníngalæknir, sem þýðir reyndar ekki að hann lækni pénínga, heldur að læknisköllun hans gengur aðeins fyrir pénínum og engu öðru en péníngum. Sona péníngalæknar hafa mjög rutt sér rúms á hinum nýfrjálshyggjuóðu Vesturlöndum, þar með talið Íslandi. Mottó þessara sérkennilegu heilsubótarmanna er að sjúklingar megi fara Fjandans til með sína kvilla ef þeir geta ekki borgað lækninum svo og svo mikið beint úr eigin vasa ofan á það sem péníngalæknirinn sýgur beint úr spena ríkissjóðs. Þessir pénígalæknar, svona eins og hann Furtado, eru geysivinsælir hjá efrimillistétt og yfirstétt, og heldur það fólk vart vatni af hrifningu á péníngalæknunum.

Nú, Furtadó péníngalæknir í Brasilíu ku vera gríðarvinsæll hjá brasilísku arðránsdóti, því hann stækkar og minnkar rasköt, kynfæri, brjóst, varir, lappir og lúkur. Svo gerðist það einn daginn að persóna nokkur, sem var að láta stækka rassinn á sér hélt yfir móðuna miklu í miðri aðgerð hjá Furtadó lækni. Þetta þókti víst ekki nógu gott svo að yfirvöld handtóku kærustu Furtadós, en Furtadó sjálfur hljóp í felur með lafandi tunfu og ætlar ekki að láta ná sér.

Aðgerðir til fegrunar raskötum eru mjög einfaldar hjá Furtadó. Hann sprautar sem sé koppafeiti í afturendann á pesónunni sem er óánæggð með bakhlutann á sér, sem gerir það aftur að verum að raskatið þenst út og verður töfrandi í allri sinni útvíkkuðu dýrð. Þá hefir Furtaói verið hælt mikið fyrir að breyta karlamannssköndlum þannig að þeir verða eins og tónhvísl eða forkur í laginu, þannig virka þeir víst undurskemmtilega. En nú er hinn geysivinsæli rassavíkkunarpéníngalæknir farinn í felur svo yfirvöld láti ekki misþyrma honum og kála í brasilísku fangelsi, en fangelsi þar um slóðir eru þekkt fyrir miskunarleysi og fólsku.


mbl.is Læknir á flótta eftir rassastækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband