Leita í fréttum mbl.is

Hún gekk til kukks meðan Danagrettla óð elginn í afmæli Steingríms

ingv5_1240253.jpgÞað er naumast andskotans kurteisin atarna að stökkva alltaf frá til að skíta þegar viss konugarmur tók til við að halda ræðu. Sennilega væri lítið eftir af kratakindinni frú Helguvölu ef gamla grettlan hún Pía hefði tekið upp á að halda ræðustúf á tveggja mínútna fresti allan hátíðardaginn og fram á nótt. Hræddur er eg um að það hefði gegið svo nærri Helguvölu að ekkert hefði orðið eftir af henni annað en skjátan ein og fáeinar fatadulur.

En leikaraskapur Helguvölu og Píratana kríngum þessa dönsku rasistagrettlu er bæði kynlegur og hlálegur. Fólk er farið að halda að það séu einhverjir óútskýranlegir typpakomplexar á bak við þetta dularfulla sjónarspil. Leikritið er auðvitað sett upp til að koma því inn hjá einfeldningum að Píratar og Helgavala séu mun betri en annað fólk, meira að segja svo góð að viðkvæmar heilastöðvar í þeim þoli ekki dansk-hitlirískt kjaftæði, ekki einusinni á fullveldisafmælisdegi Steingríms J. og stór hætta sé á að allt brenni yfrum í höfðinu á þeim þessháttar ,,orðræðu." Og nú eru komnar upp raddir, og það að vonum, sem segja að ekki sé undarlegt að Píratarnir og Helgavala hagi sér sem raun ber vitni: Þau séu skilgetnir afkomendur Faríseans víðfræga sem lyfti ásjónu sinni til hymmna og mælti: - Gvöð minn ég þakka þér mikið og vel fyrir að vera miklu betri en annað fólk, að ég tali nú ekki um þetta helvítis tollaragerpi, sem þykist vera að gera bæn sína hérna við hliðina á mér.

Nú þykir einnig orðið jafnvíst og nótt fylgir degi, að Píratasöfnuðurinn og Helgavala fari beint í Hymmnarann þegar þau sálgast; þau eru nefinlega sannheilög í allr sinni óendanlegu dýrð. Svo eru aðrir sem gefa lítið eða ekkert fyrir leikþátt Pírata og Helguvölu kringum þá dönsku. Þeir spyrja hvern fjandann sjálfann sona leikaraskapur eigi að þýða, hverja sé verið að blekkja og til hvers. Þá hlæja þeir hinir sömu háðslega að klósettferðum Helguvölu undir ræðubrögðum Danagrettlu og varpa fram spurningum á borð við þá hvort Helgavala hafi munað eftir að þvo sér um lúkurnar eftar að hafa athafnað sig svo raunarlega á salernisskálinni á Þingvöllum of svo aftur á Hotél Sugu um kveldið.


mbl.is Brá sér einnig frá í kvöldverðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Hvort þessi Helga Vala hafi þvegið sér um hendurnar veit ég ekki, en eins islamiseruð og hún er þá hefur hún bara notað vinstri höndina til að skeina sér, eins og arabískir skoðanabræður hennar gera.

Kóraninn bannar múslímum að nota klósettpappír. Allt sem stendur í kóraninum hafa þeir fylgt orð af orði sl. 1.400 árin, sama hvað það er fáránlegt.

Aztec, 21.7.2018 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband