Leita í fréttum mbl.is

Ekkisins kjaftæði og flís við rass

kapital11Hvaða ekkisins kjaftæði er þetta í lygamörðunum í Amríku núna? Ég hélt það dygði þeim að ljúga svo og svo mörgum morðum upp á Stalín sáluga og einhverjum slatta af slíku upp á Pútín aumingjann svo þessi illyrmi séu ekki að kenna Pútín og Rússum, og jafnvel Stalín, um að Bandaríkjamenn kusu sér hálfgeggjaðan eð algeggjaðan náunga fyrir forseta hjá sér.

Það er líka talað um einhvern fjandann í þessari grein, sem greinarhöfundur er svo gamansamur að kalla ,,bandaríkst lýðræði", en sem kunnugt er bandarískt lýræði ekki til, aðeins bandarískt auðræði, byggt á tveggjaflokka einræði og alræði fjármagnseigenda og mafískra bófadjöfla. Megi Guð almáttugur forða hvurri lifandi mannkind frá að nefna eins fráleitan hlut og ,,bandarískt lýðræði" á nafn framvegis.

kolb19.jpgEina gleðifrétt get ég þó flutt Íslendingum að þessu sinni: Brátt verður kynntur til sögunnar Kolbrandur Kolbeinsson, bróðir okkar ástkæra Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns. Kolbrandur hefir sem maður segir, lengi lifað í skugga bróður síns en er þó aunginn veifiskati á vissum sviðum og bylgjulengdum fremur en hans ástsjúki bróðir. Hjá bæðum þedsum bræðrum hafa kvennamálin löngum verið í ólestri, og karlamálin víst líka ef að er gáð. En vissulega mun þjóðin hafa gott af að kynnast Kolbrandi Kolbeinssyni því hún mun samsama sig sálarlífi hans, andlegu atgerfi, siðferði og kynferðislífi; þar mun allt falla sem flís við óhreinan rass.


mbl.is Saka Rússa um útbreidd kosningaafskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband