Leita í fréttum mbl.is

Manni var skíthræddur

kenn.jpgÞað er ekki par undarlegt að manna hafi ekki staðið á sama þegar flugmaskínan sem hann var í var rétt í þann mund að farast. Það hefði verið hálf-kyndugt, ef manna hefði staðið á sama, hefði kanski klappað saman lófunum og sagt kúkabrandara til að skemmta farþegunum við dauðans dyr. Og hvaða helvítis manni var þetta, sem ekki stóð á sama? Það væri fræðandi, svo ekki sé nú meira sagt, að komast að því hver manni er og hverra manna. 

Og þegar flugvélargarganið lenti og skrönglaðist og skakklappaðist eftir flugbrautinni upp að stöðinni stóð hópur barna í hlaðinu og söng: ,,Manni, mannaglanni, þeir kalla hann manna á Hóli þó hann sé bara helvíts drjóli". Og síðar í söngnum segir: ,,Á fróni köldu kúldrast Valdi, kúkinn hefir hann enn í haldi þó kérlíngin hans í móinn maldi.

En hvað sem þessum bévítis Manna líður, þá er samt nokkuð víst að hann er í ætt við Jón Sveinsson Nonna. Þá kemur upp í hugann frændi þeirra Nonna og Manna, hann Kjari Manna. Kjari Manna var ógurlega kvensamur en naut að sama skapi fádæma lítillar kvenhylli. Það sem varð Kjara aðallega að falli í augum kvenna var hve hann ófríður, andfúll og ólánlegur í laginu; hann var í sem fæstum orðum forljótur, skældur og úldinn og það svo að búpéníngur lagði á flótta ef hann nálgaðist, ekki síst kýrnar, sem ærðust af hræðslu og hljópu yfir hvað sem var og gegnum gaddavírsgirðingar og steypta fjósveggi. En vandamálið Kjari Manna leystist giftusamlega þegar hann var úti í mannskaðabylnum á þorra, hann fannst gaddfreðinn úti á miðri götu fyrir framan kaupfélagið. 


mbl.is „Manni stóð alls ekki á sama“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Jói. Gefðu Alþýðufylkinguna upp á bátinn og farðu að styðja Sósíalistaflokkinn í Noðvesturkjördæmi. Flokkurinn hefur verið að gera vel í Reykjavík og hefur verið að berjast fyrir hagsmunum húsnæðislausra gegn föntunum í meirihlutanum.

Aztec, 10.8.2018 kl. 22:24

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nei, ég gef Alþýðufylkinguna ekki upp á bátinn, því ég veit alveg hvar ég hef hana og þau sem í henni eru; það er fágætur eiginleiki nú til dags í félagasamtökum, að ekki sé minnst á pólitíska flokka.

Jóhannes Ragnarsson, 11.8.2018 kl. 19:35

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

En ég verð að bæta við, að ég er ánægður með þreifingarnar sem orðið hafa vinstramegin við alþingisflokkana.

Best væri ef Alþýðufylkingunni og Sósíalistaflokki Íslands bæri gæfa til að sameinast í einn heilsteyptan sósíalískan flokk.

Ég treysti fólkinu í Alþýðufylkingunni til að fara gegnum slíka sameiningu, en þeim í Sósíalistaflokknum miklu síður, en það er af því að í Sósíalistaflokknum er allt of mikið af Svörtupétrum til að hægt sé að treysta þeim flokki til sameiningar við aðra, eða ganga í önnur mál sem krefjast 100 prósent heiðarleika, hugsjóna og einlægni. Þannig er nú það.

Jóhannes Ragnarsson, 11.8.2018 kl. 19:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband