Leita í fréttum mbl.is

Í kveld er sálumessa sungin

presturDjöfuls endaleysa er nú ţetta. Bjarni Bjarnason steig ekki neitt til hliđar; hann valt útaf stólnum og skondarđi undir borđ og liggur nú ţar fyrir hunda ađ kvenna fótum. Aumingja karlinn. Í kveld syngur síra Baldvin sálumessu í musteri sínu Orku náttúrunnar til heiđurs og ţá ekki síđur sjálfri Orkuveitunni. Sálumessan verđur ekki ađeins sálumessa heldur og hámessa, sem líkleg er til ađ valda straumhvörfum í baráttu lýđsins fyrir náttúruleysi og ónáttúru.

Ţegar síra Baldvin settist á kamarinn í morgun fékk hann hugljómun, guđlegrar ćttar ađ hann telur, ţess efnis ađ nú verđi geistlega valdiđ ađ bregđast viđ ótíđendum úr Orkuveitunni, útbreiddum pervertismus ţar um ganga og illviđráđanlegum dónaköllum og kellingum, sem einskis svífast. Og um leiđ ađ blessunarlegt dýrđarljósiđ, síra Baldvin, sem stendur öllum öđrum nćr englum og guđdómi, togađi upp um sig ţykka nćrbrókina og óţefurinn var í ţann veginn ađ ríđa honum ađ fullu, skaust hugmyndin um sálumessuna alsköpuđ fram í frjóan huga hans.

Sem kunnugt er hefir síra Baldvin ţann hátt á ađ skylda sóknarbörn sín til ađ mćta í allar kirkjulegar athafnir sem honum dettur í hug ađ halda. Ef sóknarbörn vanrćkja umrćdda skyldumćtingu eiga ţau á hćttu ađ sóknarprestur ţeirra komi og berju ţau til óbóta međ eigin hendi, sem er allt í senn, stór, köld, hörđ og firnasterk. Í kveld má búast viđ ađ síra Baldvin bannfćri tvo perrakarla í sókninni, sem hafa orđiđ berir af ónáttúru og ţar međ viđbjóđslegu hugarfari. Og eflaust mun ţessi eini kraftaklerkur ţjóđarinnar lýsa yfir banni á samneyti fólks viđ stjórn og stýrimenn Orkuveitunnar, ţví hann er viss um ađ nú séu ađ koma fram áhrifin af ţví ađ sćkja niđur í iđur jarđar eftir hita, sem ađ sjálfsögđu verđi til vegna athafna Andskotans í Helvíti og illir andar og djöflar hafi hlaupiđ í starfsliđ Orkuveitunnar og borgarstjórn Reykjavíkur. 


mbl.is Bjarni stígur til hliđar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ţorsteinn Siglaugsson

Já, svona fer ţegar vita náttúrulausum afgömlum sjálfstćđismönnum er velt úr forstjórastólunum ...

Annars er gaman ađ velta fyrir sér hvernig ţetta hefur gengiđ til á laugardagskvöldum hjá strákunum á fimmtu hćđinni: "Jćja strákar, hver nćr nú ađ senda flesta sniđuga tölvupósta á kéllingarnar á tíu mínútum? Einn, tveir og byrja!

Ţorsteinn Siglaugsson, 17.9.2018 kl. 23:19

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband