Leita í fréttum mbl.is

Þeir leggja Sigmund í ofbeldisfullt einelti að hætti óargadýra

kol21Hvur fjandinn er eiginlega að bölvuðum mönnunum? Það er orðinn plagsiður hjá þessum djöflum að ráðast á Sigmund Davíð, þennan veslings krossbera, og leggja hann í einelti með hroðalegu orðbragði og öðrum tiltekjum. Ekki fara vinir hans í Klausturbandalaginu heldur varhluta af vonsku hýenudjöflanna, sem Sigmundur Davíð og hans breiddargráða kalla ,,góða fólkið" í háðungarskyni; mönnum er nú heimilt að svara fyrir sig, hohohoh. í dag réðst skrattinn hann McCarthy, sem ,,Mccarthysisminn bandaríski er nefndur eftir, eins og óargadýr á Sigmund Davíð og bar á hann slíkan óhróður, sem sambærilegur er við bíta mann í kálfann af óumræðilegri heift.

dan1Ástæðan fyrir ofbeldisfullu samtali og orðræðu McCarthys í garð Sigmundar Davíðs helgast af öfundsýki Píratanna út í Sigmund af því að hann og hans Klausturbandalag hreppti stjórnmálasörungana Karl Gauta og Óláf Ísleifs. Píratarnir hafa í margar, margar vikur, gengið á eftir Karli og Láfa og grátbeðið þá og ragmanað að ganga í Pírataflokkinn. En Karl og Láfi eru skynugir náungar og höfnuðu Pírötum á þeirri forsendu að Píratar væru bæði hundleiðinlegir og ennþá klikkaðri. Píratarnir buðu meira að segja þeim Karli og Óláfi til ruddalegrar samdrykkju á alræmdir krá og lofuðu hressilegu baknagi, klámfengnum yfirlýsingum, undirferli og óþverraskap. En Karli og Láfa var ekki hnikað, þeir völdu fjöruga stráka eins og Sigmund, Beggó og Gunnsa Bræja og Önnukol eftir að hafa þegið veitingar af Pírötum og farið á generalfyllirí með þeim.

father.jpgNæst á dagskrá hjá Karli, Láfa og Klausturbandalaginu er að lempa sjálfum kirkjuhöfðingjanum mikla úr Holti inn í þingflokkinn, þó svo vanþakklátir kjósendaasnar hafi hafnað hinum glæsilega sálusorgara í alþingiskosningum, sálusorgara, sem eins og vera ber, er í stöðugu talsambandi við Krist, Gvöð og þann heilaga og skipar þeim fyrir verkum ef svo ber undir. Því miður er síra Baldvini eins stöðugur í trúnni á spámanninn í Holti og strákarnir í Klausturbandalaginu. Síra Baldvin hefir fyrir sína parta bannsungið karlinn og forboðið honum að koma inn fyrir landamæri prófastsdæmis síns. Síra Baldvin segir, að hvur sá er svíkur sinn evangélískatthólska Sjálfstæðisflokk og gangi í félag við burtrekin afstyrmi úr Framsókn, eða öðrum þessháttar heiðingjatrúboðum, sé í raun ærulaus fyrir Drotni og Jesús vilji ekkert af soleiðis kauðum vita og vilji helst kasta þeim þegar í stað í eldsofninn. Síðast sunnudag vígði síra Baldvin Bjarnaben til semikardínála og gaf hann jafnframt saman við Katrínu litlu í poletiskt hjónaband. 


mbl.is Sagði framgöngu Pírata „ógeðfellda“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband