Leita í fréttum mbl.is

Tóm jakkaföt messa yfir öfgafullum trúarsamtökum gráðugra siðvillinga

prestur2Það hlýtur að vera svakalega skemmtilegt fyrir meðlimi Viðskiptaráðs að láta tóm jakkaföt messa og fara með borðbænir yfir þeim að morgni dags. Og Viðskiptaráð er líka einn af pípuhöttum íslenska auðvaldsins, sem lærði, ekki fremur en meirihluti þjóðarinnar, neitt af Hruninu, öfgum, glæpum og mannfjandskap frjálshyggjunnar. Svo er að sjá að helsta gluggaskraut Bjarnaben, svar þeirra í Valhöllu við Bolholt við Katrínu Stengríms og Lilju Framsóknar, hafi setið undir bænalestri tómu jakkafatanna og unað sér vel eins og gluggaskrauts er siður á betri bæjum.

Nú, Viðskiptaráð er auðvitað öðru fremur öfgafull trúarsamtök þeirra er fengið hafa heilalausa ást á guðinu Mammóni og þar taka safnaðarmeðlimir við orði hins blessaða, gráðuga Mammóns af gagnrýnislausri undirgefni þeirra sem fengið hafa meir en nóg af skriðdýrseðli í vöggugjöf. Og Viskiptaráð stefnir ótrautt að næsta hrun, því eftir gott hrun sópa innvígðir mammónsistar að sér auðæfum án þess að skríllinn geti rönd við reist.

heim5.jpgÁ meðan bænalestri tómu jakkafatanna stóð yfir í Viðskiptaráði, sleit Stengrímur AGS Samherji Mammóns og hinna gráðugu þingfundi í fússi því honum þókti ekki nógu vel ganga að greiða götu hinna slefandi auðvaldspésa, sem bíða eins og mínkar eftir bráð sinni, að alþingi afgreiði ,,orkupakkann" svo þeir geti haldið áfram að plana rán hinna siðblindu og gráðugu á orkuauðlindinni, sem íslensk alþýða á þó enn, þó undarlegt sé. 


mbl.is Best á „þetta reddast“-mælikvarðanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband