Leita í fréttum mbl.is

Jólatré í ræðustól

jólEkki er Katrín burðug ef einn krataeðliseintrjáningur getur skotið hana niður eins og pappirsbát; bát eins og litlir krakkar bjuggu til úr Mogganum í gamla daga. Og hlálegt er það þegar platvinstrisinnar taka til við að draga vinstrimennsku hvurra annarra í efa, því ef eitthvað er áreiðanlegt í veröldinni þá er það sú staðreynd, að hvorki Katrín né Oddný eru vinstrisinnar; þær eru fyrst og fremst leiðinleg glimmernúmer efrimillistéttar hins borgaralega elítuslektis. Því miður hefur þessum leiðindaskjóðum tekist að blekkja kjósendur til fylgilags við þær í kosningum á rammfölskum forsendum.

Meira er þó gaman sjá hvað hvað þingkonur á Íslandi, ekki síst þessar sem eru í vinstriloddaraleik, taka mikið mið af fullskreyttum jólatrjám í klæðaburði sínum. Þessar dömur hika ekki við að margvefja sig þykkum, litskrúðugum treflum, slá utan um sig stórrósóttum og glimmeruðum kjólanefnum og láta hrígla vel í skratgripunum eins og þær séu kalkaðar ellikellingar á fremsta bekk á einhverri skemmtun hjá auðvaldinu.

Í kveld hefir líka hvurt jólatréð eftir annað klaungrast eins og jólatré upp í ræðupúlt Alþingis og bullað einhverja endemisþvælu, sem aungum dettur í hug að reyna að skilja, því það er tilgangslaust. Og skilja þessi alþingisjólatré í stjórnmálamannaleik meira í kjaftabullinu í sjálfum sér, enda ekki að undra því jólatré eru að öllu jöfnu ekki þjökuð af hárri greindarvístölu, þvert á móti eru þau bæði vitlaus og hvimleið.


mbl.is Oddný skaut fast á Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband