Leita í fréttum mbl.is

Þetta er heimsmet, - en fulli kallinn á bílnum missir ekki prófið

drunk1_1048452.jpgLoksins tókst Hálfdáni varðstjóra að ná Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni augafullum undir stýri eftir áralangan eltingarleik. Og Kolbeinn var svo fullur, að varðstjóranum fannst sem hann héldi á bunka af blautum þvotti en ekki mennskum manni, þegar hann mismunaði Kolbeini inn um afturhurðina á lögreglubifreiðinni. Þegar Hálfdán varðstjóri hafði komið Kolbeini fyrir í fangaklefa lét hann tóman kopp inn til hans og lokaði og sló slagbröndum fyrir.

Þegar Hálfdán varðstjóri vitjaði Kolbeins aftur var hinn síðarnefndi búinn að kukka og kasta af sér þvagi í koppinn og var að öllu öðru leyti hinn hressasti. Hálfdáni brá að vísu nokkuð í brún, því hann hafði gleymt að láta fangann hafa salernispappír og þókti einsýnt að Kolbeinn væri ekki aðeins maríneraður og gegnsósa af brennivíni heldur væri helvísk skepnan óskein í þokkabót. Það var því ekki að undra að Hálfdán trylltist er hann hafði gert sér grein fyrir hinu sanna í málinu og skellti næturgagninu beint ofan á hausinn á fanganum, þar sem það sat fast.

Síðan skipaði Hálfdán tveimur ungþjónum, sem eru að læra til varðstjóra, að kasta Kolbeini út á strætið, eða öllu heldur leiða hann að Hlemmi og inn í skyndibitastað Dags þar á torginu og skilja ,,þennan djöful" þar eftir með koppinn á hausnum. Þessa stundina leitar frú Ingveldur logandi ljósi að Hálfdáni varðstjóra til að hefna fyrir ófarir eiginmanns síns. Og þó svo að Kolbeinn hafi sett heimsmet í áfengismagni í blóði undir stýri, er jafnvíst, að hann missir ekki bílprófið sitt, um það verður sé á æðri plönum mannlífsins.

 


mbl.is Aldrei séð aðrar eins tölur á mælinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband