Leita í fréttum mbl.is

Það verður sungið og spilað á handreð og holdugan botn

auð1Já, þegar Bjarniben endurréði Má á sínum tíma var gengið frá því um leið að Sjálfstæðisflokkurinn fengi að ráða sinn mann sem næsta seðlabankastjóra. Með öðrum orðum klóraði Íhaldið Samfylkingunni og VG á rassinum uppá að Katrín stórsósíalist mundi klóra Bjarnaben á þeim óæðri með seðlabankaskröpunni og dubba fyrir hann valinkunnan frjálshyggjustegg upp í stöðu seðlabankastjóra. Svo fékk Bjarniben sjálfur að bera Má út í ruslatunnuna og litlu Heimdellingarnir, hvítvínsþjórararnir og humaræturnar pissa á eftir Má ofan í tunnuna og vóru nær búin að drekkja kallsálinni.

Að heimili frú Ingveldar og Kolbeins ríkir nú uppskeruhátíð, enda hefir nú hinn krossfesti frjálshyggjudrengur stigið niður af krossinum. Og í kveld verður grillað og grillað og drukkið tvöfalt, þrefalt og fjórfalt, hvítvín, romm og svartidauða. Brynjar Vondalykt er í bleikum kjól í hófinu og Máría Borgagn heldur sona lausgyrt af konu á hennar aldri. Og svo verður sungið og spilað á handreð og holdugan botn. En best verður þegar Már Samherji, Már Seðlari og Giilvi syfjaði taka þríraddað saungnúmer, Leiðindarapsódíuna í fullri lengd.

síra BaldAnnars staðar á Íslandi er fólk samankomið til að velta fyrir sér hvort ekki sé hægt að leggja Seðlabankann niður, því hann er öldungis óþarfur og hefir gjört landsmönnum fleira íllt en gott. Einhverjir er á því að rétt sé að sameina Seðlabankann inn í Þjóðminjasafnið, en aðrir telja að ekki sé við hæfi að bera óþverra inn í hús þjóðarminja á Íslandi. Þá hafa verið uppi hugmyndir að koma Seðlabankanum fyrir undir stóra steininum í gömlu fjárréttini hans Snorra á Húsafelli ásamt með púkum, sendingum, tilberum, snökkum og fjósdraugum, sem séra Snorri kom þar fyrir á sinni tíð. Verði síra Baldvin fenginn til að kveða Seðlabankann og öll blýantsnagdýrin niður þar á Húsafelli, en sagt er af sumum, að síra Baldvin sé einmitt séra Snorri á Húsafelli endurborinn; sem fer nærri sanni, að því undanskildu, að síra Baldvin er ekki nema í meðallagi náttúraður fyrir rímnayrkingar, en hann hefir þó sjálfur orkt alla sálmana sem eru í sálmabókinni sem notuð er í hans prestakalli.


mbl.is Vel staðið að ráðningarferlinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband