Leita í fréttum mbl.is

Íslenskur hægriöfgamaður lenti í ógöngum þar sem hann var í heimsókn

kol24Þær eru so dásamlega þessar hægriöfgar, hreinkapítalískar og hallar undir vald og stríð. Nú segja mér hægriöfgamenn á Íslandi, og þeir eru nú ekki ófáir, að nú vanti okkur alminnilegan Hitlir með Gobbels og Göring með sér í stjórnarráðið. So verði Mengele læknir gerður að landlækni og yfirlækni á Landspítalanum, sem hægriöfgamenn kalla einlgt Landspýtlínginn. Fyrir skömmu átti ég tal við einn af þessum öfgahægrimönnum og hann olli mér ekki vonbrigðum. Þegar ég gerði ekkert með hinar frómu óskir öfgahægrimannsins, sem ég veit að runnar eru undan innstu hjartarótum hans og gengu út á nauðsyn fyrir hinn sterka mann, sem ekk léti útlendinga og geldinga vaða yfir okkur, varð hann hálfillur og kallaði mig helvítis aumingja og fífl og Stalínsdrullu og í lok lofræðu sinnar um mig vildi hann endilega að ég væri barinn, helst í hel, og steytti framan í mig beinaberann hnefann.

Þegar þar var komið sögu að hægriöfgamaðurinn var í þann veginn að fara að útrýma mér að auswitchískum sið, þá sagði ég honum af góðu heimili þar sem væru húsráðendur, sem munda meta málflutning hans að verðleikum. Og þannig atvikaðist það, að hægriöfgamaðurinn bankaði upp á hjá frú Ingveldi og Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og Framsóknarmanni og frestað í leiðinni að ráða mig af dögum.

hitler1Á heimili frú Ingveldar og Kolbeins fékk hægriöfgamaðurinn að kynnast svo öflugri hægrimennsku, sem mun líða honum seint úr minni. Ekki hafi öfgafrömuðurinn setið lengi í stofusófanum að frú Ingveldar og Kolbeins þegar hjónin Máría Borgargagn og Indriði Handreður stóðu upp úr hægum sessum sínum og settu sig niður sitt hvoru megin við öfgagestinn. Og áður en hægriöfgamaðurinn gæti rönd við reist höfðu þessi frökku hjón farið höndum inn á hann beran og hafið þukl, og Borgargagnið tróð slímugri og bersyndugri tungunni upp í annað eyrað á honum. Ekki minkaði undrun hægriöfgamannsins þegar hann varð var við að Handreðurinn var búinn að ná hreðjataki á honum. Skömmu síðar var högriöfgamaðurinn orðinn kviknakinn, berrassaður, á miðju gólfinu í framandi húsi, og honum áður ókunnugt fólk var í óðaönn að taka hann með sér í eina svívirðilega og niðurlægandi kynorgíu. Svo kom húsmóðirin, frú Ingveldur, vædd rafurmagnsrakvél, og rakaði án minnsta samviskubits helminginn af Hitlirsskegginu á öfgahægrimanninum og fylgdi eftir með því að raka burt helmingin af þeim hárum, sem uxu eins og djöflagróður umhverfis kynfæri hans. Svo var lögreglan allt í einu mætt, það var fanturinn og fólið Hálfdán Varðstjóri, og frú Ingveldur og Kolbeinn skipuðu þessum vonda varðstjóra að handtaka hægriöfgamanninn og báru, að hægriöfgamaðurinn væri geggjaður, því hann hefði allt í einu verið kominn svona útlits eins og hann stóð, hálfskegglaus og dónalegur inn á mitt gólf; það væri alveg áreiðanlegt að þessi ókunnugi skuggabaldur væri hættulega brjálaður og því væri hann best kominn í vörslu hins öfluga Hálfdáns Varðstjóra. Síðan hefir högriöfgamaðurinn ekki þorað að láta sjá sig á almannafæri.     


mbl.is Hægriöfgar á afmæli heimsstyrjaldar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband