Leita í fréttum mbl.is

Hvurjir gista ofurmennagrafreitinn á Þingvöllum?

jarðarförMyndin af Þingvöllum, sem fylgir þessari frétt á mbl., er fróðleg að því leyti, að þar sér vel og vítt yfir ofurmennagrafreitinn atarna, hringlaga með kross í miðju. Þarna sést líka vel hve mörg ofurmenni hafa verið borin þar til grafar, en þau eru samtals tvö. Annarsvegar kúrir skáldið Einar Benediktsson en á hinn vænginn er sagður liggja Jónas nokkur Hallgrímsson, öxndælskur maður sem deyði fyrir aldur fram á Danaveldi.

Allt væri þetta gott og blessað ef ekki kæmi til tortryggni hvað varðar jarðneskar leifar þess öxndælska. Um það bil einni öld eftir burtsofnun Jónasar fengu fáeinir þjóðrembumenn þá flugu í höfuðið, að nú væri tími til að fara með það sem eftir væri að listaskáldinu heim í íslenska fósturmold. Og það var farið að grafa. Og þeir grófu og grófu. Þeir komu niður á bein og fúið spýtnabrak. Nú var úr vöndu að ráða, því grafarar þóktust sjá, að þarna væru þeir komnir niður á bein úr fleiri mönnum en einum og fleiri en tveimur. Þá kom upp úr dúrnum, að ekki var á hreinu hvar listaskáldið hafði verið huslað, nokkrar líkur voru á að bein þau er upp vóru komin væru bein dansks svínaslátrara, sem hafði verið grafinn þarna nokkru eftir andlát þess öxndælska.

Nú voru góð ráð dýr. Og eftir nokkra elefanta til viðbótar frá Carlsbergi og fáeina vel útilátna drammara af aquavitae frá Aalborg, komu hinir íslensku grafarar sér saman um að tína eitthvað af slátrarabeinunum í poka og láta það gott heita sem jarðneskar leifar Jónasar. Svo fengu þeir sér þokkalega líkkistu hjá útfararstjóranum í Kaupmannahöfn, dreifðu beinunum úr pokanum yfir kistubotninn; að lokum fórnuðu þeir nokkrum tómum niðursuðudósum niður til beinanna og læstu síðan kistunni með slagbröndum og hengilási. Eftir skemmtisiglingu með Jónas, eða staðgengil Jónasar, í kistunni héldu fyrirmenni þjóðarinnar hugnæma pípuhattajarðarför á Þingvöllum og slökuðu þeim öxndælska, eða öllu heldur slátrarabeinunum og niðursuðudollunum, niður í helga mold við hliðina á Einari skáldi og framkvæmdamanni. Síðan hefir ekki mátt nefna pípuhattajaðarför yfir dönskum beinum og blikkrusli á nafn í heyranda hljóði á Íslandi. 


mbl.is Telur að Ari Trausti eigi að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband