Leita í fréttum mbl.is

Nú verður að kenna börnum á leikskólum að syngja kvikmyndasaungva frú Guðnadóttur

jurosing.jpgHelvíti er hún nú seig þessi Hildur, hryllilega ólseig. En það er allt í lagi. Nú er hún búin vina fullt af keppnum og í kveld kórónaði hún og toppaði allt með því vinna þarna þessi Gramms-verðlaun. Í fyrramálið hefst svo alvaran þegar háskólamenntaðir leik-skolakennarar fara að kenna börnunum að kyrja melódíur Hildar. Ófaglærða starfsfólkið á leikskólunum, ætli þeir séu ekki kallaðir leiðbeinendur og leik-skolaliðar, eru mestan part laglaus eintök og margar ljótar sögur sagðar af saungkennslu þeirra, sem birtust einna helst á þann hátt að krakkasmánirnar komu organdi og veinandi heim í þerri fullvissu, að óhljóðin í þeim væri saungur.

Svo eru ófaglærðu barnapíurnar að fara í verkfall þannig að þær fá vart ráðrúm á næstunni til að spilla saungelskum börnum, og er það vel. Frú Ingveldur setti eitt sinn, að vísu fyrir löngu síðan, á stofn merkan leikskóla sem hún kallaði Skallastefnuna og var mjög frumleg stofnun. Börnin sem sóktu Skallastefnuna urði fljótlega geðbiluð af fræðum frú Ingveldar og fimm ára drengur, áður hugljúfur glókollur, sókti haglabyssu föður síns og skaut heimilishundinn, úr báðum hlaupunum í einu; honum hafði sinnast við hundfjandann út af brauðsneið sem drengurinn hugist eta, en rakkinn hafði orðið fyrri til og gleypt brauðsneiðina. Talið var að þetta morð hafi átt rætur sínar að rekja til náms drengsins í Skallastefnunni. Skömmu síðar var Skallastefnunni lokað og börnin fóru á vergang.

Já, leikskólaliðar og leiðbeinendur í Reykjavík gætu svo sem alveg tekið kvikmyndasöngva frú H. Guðnadóttur upp á saungskrá sína og trallað þá byltingarsamkomum og kröfugöngum á næstu vikum, mánuðum og misserum. Samninganefnd Dags og hinna Samfylkingarhróanna mundi bráðna og hrökkva upp af standinum og skíta í buxurnar, ef leik-skolaliðar færu allt í einu að urra kvikmyndavers hins margverðlaunaða tónskálds á miðjum samningafundi.
En mér er andskotans alveg sama hvort þessi frú fær verðlaun eða ekki fyrir að hafa klambrað saman ískrandi óhljóðum.  


mbl.is Hildur hreppti Grammy-verðlaunin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband