Leita í fréttum mbl.is

Ef leikskolabörnin stofna skæruliðasamtök, þá, - þá

gunÞað þýðir ekki að fást um það, verkfall er verkfall. Og þó svo Efling sé komin í harðan leik gegn krataeðlinu þá stoðar ekki að bresta grát og grénja af sér augun og eyrun og að síðustu púnginn. Krataeðlið skal niður, enda er það eðli í þjónustu auðvaldsins. En auðvitað eru þetta óttalegir paurar þarna í Eflingu; hvað eftir annað hefir þessum andstyggilegu fólum tekist að græta Dag borgarstjóra á skammarlegan hátt. Hann verður bráðum búinn að grénja allt sem hægt er af sér þannig að ekkert verður eftir nema strípað krataeðlið, slepjugt og viðurstyggilegt.

So er verið að segja að Stenngrimmur og Bjarniben taki bráðlega í taumana og banni verkfallið og Eflingu á Samherjalegan hátt. Það mundi skera Dag, Líf, Píratapæjuna með rauða varalitinn, Lóu og Holuhjallinn niður úr snörunni, en snaran sú er nú þegar alveg við það að kreista úr þeim polestisku goluna. Og fyrst minnst hefir verið á kreistu, þá er ekki úr vegi að minnast þess þegar Brynjar Vondalykt kreisti krataeðlisgarminn eins og tannkremstúpu, og það úti á miðri götu, þannig að allt fór í buxurnar sem í buxurnar gat komist. Já, vinir mínir og félagar, það var hátíð þann dag.

flæk1Og varla batnar ástandið ef allstór hópur leikskolabarna gjörir alvöru úr gamni og stofnar skæruliðasamtök til að herja á Degi og Holuhjalli. Það er alveg merkilegt hvað sona smá-krakkastúfar geta verið harðvítug og miskunnarlaus í tiltektum ef þau fara af stað. Eitt sona púkastóð varð til fyrir norðan og vann þar mörg dálagleg hryðjuverk. Þessir bráðungu púkalingar tóku roskin hjón í gíslingu og heimtuðu pénínga, annast fengi hið aldraða illþýði fría ferð niðrum koslettskálina. Þegar þarna var komið rauk norðlenska lögreglan í gang og kastaði eldsprengjum á húsið og styggð kom að púkunum, sem hlupu út bakdyramegin og skildu þau gömlu eftir í brennandi húsinu. Ef hin verkfallsþjáðu leikskolabörn láta slag standa og gjöra samblástur getur allt gerst, meira að segja gæti bölvuð ríkisstjórnin fallið og gamla Framsóknarmaddaman safnast til feðra sinnna. Jæja, og Dagur og Holuhjallur orðið flækingar.


mbl.is „Það er verið að koma mér í skuldasúpu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband