Leita í fréttum mbl.is

Framkvæmdastjóravakning háskólaliðsins í forustu samtaka verkalýðsins

paunkHver andskotinn er eiginlega að þessu liði sem búverkar í félögum launafólks í dag. Er því ekki sjálfrátt, eða eru þetta bara ofdekruð hænsn? Hvað á það að þýða að dubba allskonar undanrennulýð til framkvæmdastjóra launþegasamtaka og hvað gera þessir framkvæmdastórar? Þegar Solveig Anna gerðist formaður Eflingar dró hún með sér viðhengi, sem hún vildi endilega gera að ,,framkvæmdastjóra" með há laun. Þetta sérkennilega viðhengi Solveigar Önnu hefir aldrei dýft höndum í kalt vatn svo vitað sé heldur hafst við í bómull inni á háskólalóðum austan hafs og vestan. Þennan líka heimspekimenntaða spjátrung þufti Solveig Anna endilega að útvega vinnu á skrifstofu Eflingar, þó svo það kostaði að fjöldi manns gengju þaðan út í löngum veikindaleyfum og á starfslokasamningum. Síðan mætir viðhengið Solveigar í fjölmiðlaviðtöl,bísperrtur eins og afturganga úr amrískri bíómynd, þó svo enginn hafi kosið hann til eins eða neins innan Eflingar, nema örfáir stuðningsmenn Solveigar í stjórn félagsins.

Yfir Alþýðusambandi Íslands trónir nú fyrrum ,,framkvæmdastjóri" Starfsgreinasambandsins, ágætilega máli farinn glamrari úr háskólasamfélaginu og lítt vensluð verkafólki. Fram til þess að Drífa Snædal gerðist framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins og síðan forseti Alþýðusambandsins hafði ekki mikið borðið á verkalýðstilburðum af hennar hálfu, en góð sambönd tryggðu henni, eins og öðrum háskólaborgurum sem við þekkjum, hálaunastörf hjá verkalýðshreyfingunni. Auðvitað eru svona vinnubrögð ekki traustvekjandi, enda eru þau ættuð úr innstu kimum borgarstéttarinnar, aðalsins í íslensku samfélagi. Og nú hefir Drífa tekið sig til gert Höllu Gunnardóttur, sem þekktust er fyrir að vera óskiljanlegt gæludýr efrimillistéttarfémínistanna í VG. Skáldið Guðbergur Bergsson úr Grindavík sagði sem svo fyrir nokkrum árum síðan, að liðið sem verið væri að troða til áhrifa og embætta af svokölluðum ,,vinstriflokkum" væri aðeins undanrenna af gömlu sósíalistunum. Og þar hefur skáldið heldur betur á réttu að standa og orð hans hafa sannast betur og betur með hverju árinu sem líður.

Nú, þegar jómfrú D. Snædal hætti sem ,,framkvæmdastjóri" heildarsamtaka verkafólks á Íslandi og gerðist forstjóri ASÍ tók samtryggingin í formannaklíku Starfsgreinasambandsins sig til og réði hinn kúnstuga gettubeturdreng Flosa Eiríksson framkvæmdastjóra sambandsins. Flosi þessi er náttúrlega að góðu kunnur sem framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins sáluga undir Ólafi Ragnari og Einari Karli. Síðar klöngraðist hann í bæjarstjórn Kópavogs fyrir Samfylkinguna og gerðist þar leikfífl Gunnars I. Birgissonar borgarstjóra Kópavogs. Allar eru þessar ráðningar merktar spillingu og viðteknum spillingarsóðaskap samfélagsins, úrkynjun þess og dáraskap. Það er svo sem ekki við öðru að búast hjá hreyfingu, sem kennir sig við alþýðu, verkalýð og starfsgreinar hefir meðal annars dundað sér við að afhenda braskaralýð auðvaldsins félagsgjöld verkafólks til ,,eignastýringar og ávöxtunar", en það er svo sem í stíl við lífeyrisbrask þessara undanrennuhreyfingar nýframkvæmdastjóranna í verkalýðshreyfingunni. Ég legg til að verkalýðurinn taki verkalýðshreyfinguna af þessara framkvæmdastjórastétt, sem hreiðrað hefir um sig í vistarverum verkalýðsins. 


mbl.is Halla nýr framkvæmdastjóri ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Jæja Jóhannes, þú ert magnaður í þessum pistli, allt svo satt.

Hvernig er hægt að breyta þessu er svo annað mál, en fyrst þurfa menn að skilja og átta sig hvað í raun er í gangi.

Mæli með að allir lesi þennan pistil einu sinni á dag í nokkrar vikur.

Ég ætla allavega setja hann á merkjaslána mína.

Hafðu þökk fyrir.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 25.3.2020 kl. 14:33

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Takk fyrir.

Það er hægara sagt en gert að breyta svona löguðu. En það verður fróðlegta að fylgjast með þessu fólki þegar fram í sækir.

Jóhannes Ragnarsson, 25.3.2020 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband