Leita í fréttum mbl.is

Vissulega var allt mikið betra í gamla daga

Fullur jólasveinnÍ þá daga er áfengissala og neysla var ósköp frjáls og fyllikunturnar réðu sér ekki fyrir frelsi, þá vóru knæpur á þessa, sem kennd er við Gvendben, skallaðar svínastíur. Og því eru svín kölluð til sögunnar við þessa nafngift á krám, að Íslendingum bauð meira við þeim skepnum en öðrum dýrum, trúlega vegna þess, að tilsýndar eru svín furðulík berrössuðum mönnum, já og konum, á litinn. Í svínastíunum gömlu var stunduð ekki síðri menningarstarfsemi en á knæpum nýja tímans, menn drukku sig frá ráði og rænu, fóru að svo búnu heim til sín og börðu konuna og krakkana vel og vandlega. Það kölluðu menn þá, ,,að skerpa ástina", og þókti til fyrirmyndar.

En svo vóru þeir sem aldrei komust heim af kránni, eins og svínastíurnar voru stundum kallaðar, en voru dregnir inn í húsasund, þegar þeir voru á leið til eiginkonu og barna, og myrtir eins og rottur við hliðina á sorptunnum. Einnig vóru kvenvargar alkunnir í svínastíunum, þá eins og nú. Þetta voru um margt afrenndar kerlíngar, sem létu karladjöflana ekki komast upp með neitt múður. Ef einhver vildi fara með klærnar undir pils þeirra og þreifa þar fyrir sér, urðu þeir að borga fyrir skemmtunina, elligar var kérlíngarfólið víst með að rífa í handlegginn á kavalérnum og snúa hann úr axlarlið. Líka þekktist að unglingspútur legðu leið sína í svínastíurnar og þókti ekki efnilegt. Slíkar fjandans pútur áttu til að haga sér undarlega og sumar brúkuðu kjaft og pissuðu fyrir allra augum á gólfið í svínastíunni.

Í svínastíum nútímans í miðbæ Reykjavíkur hefir gestum síður en svo farið fram frá árinu 1900. Í stað merkilegra skálda, sem oft sáust á vertshúsum á nítjándu öld og fram að brennivínsbanni á Íslandi, eru komin vandræðaskáld, rýr að viti eftir fáránlegt eiturát í bland við áfengisnautn. Og í stað gömlu góðu skútukarlanna, sem lögðu hýruna sína í svínastíulífið í landi, eru komnir ónytjungar, sem segja kjósa Pírata og sparka í hunda og ketti sem verða á vegi þeirra. Og þessar glæsilegu meyjar nítjándu aldarinnar, sem prýddu samkvæmin í svínastíunum með nærveru sinni eru fyrir langalöngu gufaðar upp í hymininn. Í stað þeirra grénja nú ofdekraðar tuðrur upp í leðurhlustir menningarlausra og siðblindra afturúrsiglara í skítugum nærbuxum. Það var allt betra í gamala daga. 


mbl.is Ólíklegt að Gummi Ben bar opni aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband