Leita í fréttum mbl.is

Gríðarlega glaður hoppar hann nú á hludda-bódda-leiðinni, í skugga pervertisma alþingismanna

perr2.jpgDásamlega er það nú yndislegt, að litli kúturinn hann Steingrímur Johoð skuli vera búinn að læra nýja tískuorðið ,,útsettur". Steingrímur er með þessu framfaraskrefi, að fóta sig í rauninni semsagt í nútímanum á gríðarlega lausnarmiðaðan hátt, sem í raun og veru er semsagt gríðarlegt samtal í þágu hludda-bódda-leiðarinnar, sem hefir öðlast gríðarlega lausnarmiðaðar vinsældir. Svona getur nú ræst úr sjálfhverfum grobbdrengjum af Langanesi og do do do.

En það er í rauninni ekki alveg nýtt, að Steingrímur Johoð sé semsagt í rauninni á hludda-bódda-buxunum. Hann hefir og átt samtal við Alþjóða Gjaldeyrissjóðinn og kysst hann á rassinn í fagnaðarvímu. Það var líka fjarska lausnarmiðað af honum og Jóhönnu, að hirða íbúðir í þúsundavís af öreigum og selja þær í höndur útrásarvíkinga. Það var réttlætið, jafnaðarmennskan, vinstrihreyfingin og allur kjaftavaðallinn fram að því.

Já, þau fóru semsagt í raun og veru sérstaka lausnarmiðaða hludda-bódda-leið í gríðarlegu samtali við kröfuhafa, samherja, skiptastjóra og fleiri velunnara Hrunsins, þúveist, aaammm, héddnahér. Og þó að upp hafi komist nýverið um mannvonsku og pervertisma á Alþingi, sem hefir raungerst í sérstakan öfuguggahátt, þá heldur lífið áfram, og um að gera fyrir þingmenni að þukla hvurn annan og þreifa fyrir sér um gríðarlega lausnarmiðað samtal um semsagt nánari útsetta úrlausn á gríðarlega flóknum samlegðaráhrifum tveggja þingskörunga, öðrum í jakkafötum, tómum, hinum í pilsi og með gríðalega þykkan og útsettan gerfiullartrefil, margvafinn um hálsinn. Og hvað er að því, að til dæmis tveir eða þrír þingmenn, taki sig saman um fá sé lausnarmiðað dodo í vinnunni, við skulum segja inni á taðhúsi Alþingis, eða í góðu miðstöðvarkompunni, sem hagvanir vita manna best hvar staðsett er í hinu útsetta og lausnarmiðaða og gríðarlega Alþingishúsi við Austurvöll. 

Viðbót: Hvað ætli Lilju Mós og Guðfríði Lilju, og fleiri fyrrverandi þingmönnum VG, finnist um vandlætingu Steingríms í dag gangnvart eineltisseppum og yfirgangshundum, sem virðast leika lausum hala á Alþingi í dag?


mbl.is „Þingmannsstarfið mjög útsett“ fyrir áreitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband