Leita í fréttum mbl.is

Stjörnusýslumaðurinn á leið í útlegð og síðan á vergang

aold1Hvur hefði trúað því á vordögum að Stjörnsýslumaðurinn Stones, eitt okkar ástsælasta yfirvald, mundi um mitt sumar vera kominn á vergang? Sú er nú samt raunin því Stjörnusýslumaðurinn á nú hvurgi höfði sínu að halla, hans bíður að verða talinn með orðlögðum mönnum á borð við Sölva Helgason og Símon Dalaskáld. Ýmsum þykir lítið leggjast fyrir kappann að láta nokkrar valdagírugar yfir- og efrimillistéttarótugtir hrekja sig úr húsi og embætti út á Guð og gaddinn. Hlálegast við þetta allt er að nefndar ótuktir eru kærar flokkssystur Stjörnusýslumannsins.

En fyrst skal reynt að reka hr. Stones í útlegð til Vestmannaeyja. Má segja að hugmyndin um útlegðina hafi gjört Eyjamenn verulega hrædda, svo hrædda reyndar, að aldrei hefir uppvakist slík ofsaskelfing síðan síðan Hundtyrkinn tók land í Vestmannaeyjum og framdi sitt kunna Tyrkjarán. Mér er sagt af tíðendamanni, að Eyjamenn séu í óðaönn að vígbúast til að geta tekið á móti óvininum og hrakið hann til föðurhúsanna. Annar tíðendamaður úr Eyjum sagði er honum bárust fréttirnar af yfirvofandi hreppaflutningum dómsmálaráðuneytisins á Stjörnusýslumanninum Stones til Vestmannaeyja, að þessi telpukind í dómsmálaráðuneytinu skuli ekki halda deginum lengur að Vestmannaeyjar séu einhver ekkisins ruslatunna fyrir álappaleg vandamál Sjálfstæðisflokksins.

En hvort heldur sem Stjörnusýslumaðurinn Stones afplánar eitthvað í Eyjum áður en hann fer endanlega á vergang og gjörist landsfrægur flakkari skal ósagt látið. Hér áður og fyrr áttum vér marga góða landshornaflakkara. Slíkir menn voru elskaðir og dáðir af alþýðu ef þeir voru ekki mjög lúsugir. Reyndar voru allir Íslendingar í þá daga að minnsta kosti dulítið lúsugir, sumt fólk var líka með flatlús, einkum þeir sem betur máttu sín sín. Fémínísk prestsmaddama á höfuðbóli sinnar sveitar var oftar en ekki, ef að var gáð, bæði með lús og flatrara og ef ekki geitur í þokkabót. Það verður því að teljast fagnaðarefni, þjóðlegt og jákvætt, ef Stjörnusýslumaðurinn fer á vergang fyrir tilstilli yfir- og efrimillistéttarfémínísta í dómsmálaráðuneytinu, lögregluyfirvalda og Flokksins og gerist förumaður í rifnum og slitnum lúðrasveitarbúningi og götóttum skóm. Þá væri til einhvers barist ef Flokknum tekst að endurvekja hina gömlu flakkaramenningu í landinu.  


mbl.is Ólafur gæti endað í Vestmannaeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Jóhannes, í miðri lesningu var hugur minn kominn í Heljarslóðaorrustu Gröndals, og ekki örgrannt að lokakaflinn hreyfði við fornum minningum um góðan dáta.

Hafðu þökk fyrir brosið sem þú kveiktir á annars erfiðum degi.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 29.7.2020 kl. 22:56

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Takk fyrir Ómar.

Jóhannes Ragnarsson, 30.7.2020 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband