Leita í fréttum mbl.is

Þeir potuðu með löngutöng í rassinn ...

fokk1_1055728.jpgÞað má nú með sanni segja að erfitt sé að halda tveggja métra reglunni þegar ferðafélagarnir eru sí og að að pota með löngutöng í rassinn á hvurjum öðrum meðan þeir bíða eftir að komast út í flugvél. Þeir elta meira að segja suma inn á klosétt með löngutöngina á lofti, helvítis melirnir. 

Svo var það Kolbeinn auminginn. Hann sat í flugvél sem var að fljúga á milli landa. Þetta var leiðinlegt flug og þreytandi svo upp úr aungvu varð honum á í ráðaleysinu að smokra sinni löngutöng hérum bil í bláboruna á stífmálaðri flugfreyju sem þeyttist framhjá honum í vélinni með frekjulegum vængjaslætti. Nú, freyjan snarstoppaði og sló illyrmislega til Kolbeins hæfði hann milli augnanna. Þegar Kolbeinn komst til meðvitundar aftur var allt á tjá og tundri í flugvélinni. Frú Ingveldi hafði runnið blóðið til skyldunnar við að horfa upp á eiginmann sinn rotaðan í sætinu af glyðrulegri pjattrófu í flugfreyjubúningi, og Máría Borgargagn lét sitt ekki eftir liggja og hélt til orrustu af vaskleik og hugprýði.

Í þessari flugferð lögðu þær frú Ingveldur tvær flugfreyjur og tvo geldingslega flugþjóna að velli með glæsibrag og þegar flugstjórinn kom æðandi á vettvang notaði Kolbeinn tækifærið, ný kominn úr rotinu, og boraði löngu töng millum þjóhnappa stjórans sem varð svo um, að hann steyptist froðufellandi í gólfið og skreið síðan kveinandi fram í stjórnklefann og tilkynnti hásri og stynjandi röddu um uppreisn um borð og krafist þess að fá að lenda á næsta tagltækum flugvelli. Það er stundum eitt og annað spaugilegt, gét ég sagt ukkur, sem gjörist í flugferðum.  


mbl.is Erfitt að halda tveggja metra reglu í Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband