Leita í fréttum mbl.is

Er ofdrykkja í barnaskólum orðið daglegt brauð, - eða hvað?

fullMikill þó Djöfull er að sjá nýjar myndir úr barnaskólum í dag, samanber skiliríið sem fylgir meðfylgjandi frétt af sóttvörnum í skólum. Á umræddri mynd má sjá nokkur skólabörn með stóran kogarabrúsa á milli sín, og er auðséð á krökkunum til hvurra nota kogarasprittið er. Ef mér hefði verið sagt fyrir fáeinum dögum, að barnaskólabörn sætu á skólabekk við spíritusnautn hefði ég ekki trúað því, en sem sjá má er myndin ólýgnust um gang mála í skólunum. Nú er víst algengt að sjá börn koma veltandi sökum ofdrykkju út úr skólum og haga sér mjög ósæmilega úti á skólalóðinni.

Í þann tíð er ég gekk í skóla hefði orðið uppi fótur og fit ef skólasystkini mín, eitt eða fleiri, hefðu dregið upp brennsluspritt í tíma og farið að dreypa á því, og skóladeginum hefði svo lokið með generalfylliríi. Ekki minnist ég uppákomu af því tagi, enda hefði viðkomandi drykkjusvolabarni verði refsað með algjöru húðláti, líklegast með hnútasvipu. En tímarnir breytast og mennirnir með. Núna þykir ekki athugavert, eða í frásögur færandi, þótt börn leggi stund á kogaradrykkju í tímum og drekki frá sér ráð og rænu og gjöri sjálfum sér og foreldum þeirra til stórkostlegrar skammar.

full1Þó má samt hrósa skólabörnunum fyrir að hafa heldur ódýrar áfengistegundir sér til gottgjörelsis í skólanum í stað þess að berast á koníakki og volka. Enda má segja, að brennsluspritt, handspritt, kardó og ódýr rakspíritus séu alþýðlegir drykkir og beri neytendum þeirra vitni um hófsemi og aðhald. Það sér hvur maður að það væri með öllu ófært að krakkaskrattar, ekki einusinni komnir á gelgjuna, séu að flotta sig og sporta með rándýr eðalvín um skólaganga og kennslustofur. Mér er sagt að tólf vetra stelpugála hafi haft með sér romm, bruggað í Havana á Cúbu, í skólann og þetta romm hafi freistað kennarans svo mikið, að hann fór fram á við stelpuna að fá að drekka með henni úr flöskunni. Þetta var kvenkennari og þær skiptu innihaldinu úr Havanapyttlunni bróðurlega á milli sín með þeim afleiðingum að þær fundust eftir dúk og disk áfengisdauðar í gömlu ljósritunarkompunni. Meira segi ég ekki að sinni um þá uppákomu, en aðkoman var svo ljót að kennslukonan var leidd fyrir dómara og situr nú í gæsluvarðhaldi.   


mbl.is Sóttvarnir í skólum stórt verkefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband