Leita í fréttum mbl.is

Eru golþorskarnir svona heimskir, eða bara sérlega óheiðarlegir og óærlegir?

xb2_1254087.jpgJa, svo demmórattarnir í USA eru að bræða með sér að kæra Trumpið fyrir landráð og þá væntanlega föðurlandssvik líka. Karlfjósið er sem sé grunað um að hafa atta óargalýð á þinghús þeirra í USA með að markmiði að reka þingmennin út og ræna völunum fyrir Trumpið. Þetta þykir mörgum vel af sér vikið og dásama Sjálfstæðisflokksmenn, vestanhafs og austan, glæsilegt einkaframtak Tumpsins á lokuðum sellufundum. 

Fyrir stinnum áratug keyrðu Sjálfstæðisflokkurinn og krataeðlisflokkarnir Ísland fram af hengifluginu. Allrahanda innistæður fólks, sem lágu inni á fjárgæfrareikningum í bönkum, þynntust margir mjög af þjófsvöldum, fyrirtæki fuku á hausinn og sigldi hraðbyrir til Helvítis, en bankastjórnendurnir lögðu umsvifalaust á flótta, og sumir ekki aldeilis með tvær höndur tómar. En áfram héldu Sjálfstæðisflokkurinn og krataeðlisflokkurinn, sem hann notaði fyrir hækju um þær mundir, að stjórna, settu Hrunlög og létu í hvívetna eins og Hrunið kæmi þeim algerlega á óvart, þrátt fyrir að þeir hefði vitað í ein þrjú ár hvurt stefndi og ekki væri með nokkru móti hægt að koma í veg fyrir Hrun.

hannez5_897707.jpgÞað var undir þessum kringumstæðum sem íslenskt almúgafólk lagði leið sína niður að Alþingishúsi til að reyna að koma því inn í trénaðan hausinn á ríkisstjórnarflokkunum að þeir ættu að pilla sig frá völdum og boðað væri til alþingiskosninga. En, ónei, Sjálfstæðisflokkurinn og krataeðlisflokkurinn Samfylking þóktust ekkert skilja og sátu sem fastast í óþökk kjósenda. Það var ekki fyrr enn múgurinn neyddi krataeðlisflokkinn Samfylkingu með valdi upp að vegg, að hún gafst upp og gaf sig örlögunum á vald. Það er minnisstætt, að forsætisráðherra Hrunsins kallaði fólkið fyrir framan Alþingishúsið skríl. Þá þókti mörgum stungin tólgin og stórt upp í sig tekið. Síðar var sami forsætisráðhera Hrunsins dæmdur fyrir afglöp og slóðaskap af Landsdómi og svaraði þessi sérkennilegi forsætisráðherra Hrunsins dómnum með hroka og reif kjaft eins og slordóni. Þessu ágæta erindi alþýðu manna við ráðamenn og Alþingi haustið 2008 og fram á 2009 líkja golþorskar Sjálfstæðisflokksins nú við innrás heimskra og heilaþveginna fasista Trumpsins inn í þinghúsið í Washington! Eru þessir dæmalausu golþorskar svona andskoti vitlausir að líkja þessum tveimur gjörólíku hlutum saman eða eru þeir bara fram úr hófi óheiðarlegir og óærlegir kauðar sem leika sér að því og eru því vanir, að umgangast sannleikann eins og hvurn annann hundaskít? Vér höllumst að sjálfsögðu að hinu síðarnefnda.    


mbl.is Leggja ákæru á hendur Trump fyrir þingið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband