Leita í fréttum mbl.is

Aflúsun stendur yfir í sosialistaflokknum og brátt verður Gunnari Smára sturtað niður

femma5.jpgÞá er ekki annað en að ræsa lukkuriddarana út og plamma þeim niður á framboðslista Sosialistaflokks Íslands. Það skiptir nákvæmlega aungvu máli þókt riddararnir séu alls ekki sosialistar, eða hafi nokkru sinni heyrt á sosialismus minnst. Lukkuriddararnir standa ætíð fyrir sínu, jafnvel þrátt fyrir að gleymst hafi að skipta á þeim um bleyju í meir en þrjár vikur.

Því miður er samt staðan á þá leið að Sosialistaflokkur Gunnars Smára er ekki sosialistaflokkur, heldur er þetta sýnishorn útibú frá efrimillistéttarfémínístum og er það ekki síður skítugt er hin útbúin sömu tegundar í Samfylkingunni og VG. Allt er þetta svo slappt og steingelt, að ekki einusinni Miðflokknum stafar hætta af þessu fígúruverki efrimillistéttarfémínístana. Nú er líka farið að hylla undir að sosial-efrimillistéttarfémínistarnir teygi sig í rassinn á sjálfum Gunnsa Smára og fleygi honum öfugum úr úr nýju sosialistahöllinni við Bolholt í Reykjavík, en þar stendur sosialistahöllin eins og hænsnakofi við hliðina á Völlhöllu Sjálfstæðisflokksins.

ing3Efrimillistéttarfémínístunum hefir áður tekist að gjöra út af við Samfylkinguna og VG og gjöra þá flokka að ómerkingum. Nú hafa þeir einnig tekið sosialistaflokkinn hans Gunnsa og snúið honum á hvolf og gjört hann að samskonar ómerkingi, meira að segja áður en búið var að stofna hann nema svona til hálfs og illa það. Og hinir grimmu og ruddafengnu fémínístar í greninu Gunnsa Smára líða aungvum neitt kjaftæði og saka alla sem ekki falla í kramið hjá þeim um ,,kvenfyrirlitningu", ,,kvenhatur" og ,,óþverralega kvensemi". Með þeim framgangsmáta, sem hér hefir verið lýst, munu hinir böldnu efrimillistéttarfémínístar aflúsa sosialistaflokk Gunnars Smára af öllu karlkyns; það er ekki einusinni víst að kalladjöflarnir fái sleppa við eilífa útskúfun hins fémíníska réttlæti þótt þeir lofi upp á æru og trú að gjörast trans eða pan, kynsegin eða bara kynvillingar. Hið fémíníska borgaralega réttlæti og rétttrúnaður hundrað og eins Reykjavík virkar sem sé vel í Sósíalistaflokki Íslands og þar er nú þegar allt skúrað í hólf og gólf og dauðhreinsað. Einungis er eftir að aflúsa fáeinar hræður að fullu og ræsa hundahreinsunargengið út til að drepa niður alla karlkynsnáttúru í hinum óskeikula sosialfémínístaflokki Íslands, sem eitt sinn heyrði Gunnari Smára til.   


mbl.is Sósíalistar næðu á þing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband