Leita í fréttum mbl.is

Klámflokkurinn VG fær aungvann mann

Línga rínga ríng
Róbbý vill á þíng;
hann vill hafann gölan
og hann vill hafann fölan
og snúast hríng í hríng.

xxÆ, þetta á eftir að verða hlálegt hjá hönum Massjall, því ekki eru allar ferðir til fjár. Hvurnig honum hefir komið til hugar að verða eftirmaður Stenngims Johoð er ómögulegt að segja, en svo er um ímyndunaraflið að það lætur á stundum allt niður í hálfsofandi menn hlaupa með sig í gönur. Þannig er það eflaust með Massjall greyið. Hann hefir séð í blöðunum að Stenngimur Johoð væri að hætta í poletik og þar með losnaði gott pláss fyrir pappakassa.

Það verður og gaman að sjá hvurjir aðrir ætla á þing fyrir VG í haust. Sagt er að frú Álfheiður Ingadóttir í Flokkseigendafélaginu geti vel hugsað sér að verða poletisk afturganga og bjöllusauður á einhverjum lista VG. Þá er Vilhjálmur Egilsson fyrrum þingmenni áhugasamur um að leiða lista VG í Norðvesturkjördæmi. Og hver veit nema Kolbrún Halldórsdóttir sé að verða tilbúin í poletíska endurvinnslu með fémínísku kolaefnisspori de la Bakki, símnefni stenngrimurjohoð Drekasvæðinu.

Já, Massjall litli fer á framboðslist,
og fær í leiðinni meyjarnar kysst.
En kjósendurnir vilja ekki kyssa hann
og klámflokkurinn VG fær aungvann mann. 


mbl.is Róbert vill á þing fyrir VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband