Leita í fréttum mbl.is

Bölvaðir þorpararnir í VG norðaustur bera kvenfyrirlitningu sína svo um munar

jólÞeir eru þá svona innréttaðir bölvaðir þorpararnir í VG Stenngrims Johoð í Norðausturkjördæmi. Satt að segja er þetta með verri athæfum norður þar og austur. Að ráðast að eina jólatré flokksins á landsvísu, þingkvinnu sem hefir á afrekalista sínum að hafa orðið ræðudrottning Alþingis. Að vísu man enginn hvað hún var að fjasa um, en hún óð samt elginn uns hún stóð uppi sem ræðudrottning. Og í staðin fyrir að velja hið sanna jólatré VG í efsta sæti framboðslistans láta þessir fjandar þarna í norðaustrinu sér sæma að verða berir að megnri kvenfyrirlitningu og kvenhatri og velja einhvern grettan jólasvein í efsta sæti, eitthvert ekkisins nóbóddí sem Stenngrimur ku hafa galdrað undan stélfjöðrunum á sér. Því auðvitað vildi fémínístinn Stenngrimur Johoð ekki neina skartgripahringlandi stuttpilsu í efsta sæti VG í Norðausturkjördæmi, sæti hans sjálfs. Nei nei.

bjorn_i_xl.jpgEn hvað ætli verði um Stenngrim Johoð sjálfan eftir nálega heillar aldar slímusetu á Alþingi, einlægt undir fölsku flaggi? Sumir segja hann verði brúkaður sem púlshestur í kolanámunni að Bakka og má það teljast líklegt. Aðrir segjast hafa heyrt að karlskömmin verði landsstjóri í hálendisþjóðgarðinum, upp á búinn eins og Fjalla-Eyvindur og muni ferðamenn í framtíðinni geta lagt leið sína upp á öræfi og séð hvernig Fjalla-Eyvindur bar sig að við sauðaþjófnað og aðra þjóðlega siði á fjöllum uppi. Þetta geti orðið mjög spennandi úrræði fyrir Stenngrim og þá ekki síður fyrir skjáturnar sem hann verður látinn jaga, ferðamönnum til sannar ferðagleði og yndisauka. Ekki væri verra ef jólatréð sem fékk ekki sæti Stenngrims mundi fylgja honum sem Halla kérlíng upp í Herðubreiðarlindir og Rugludal.

x34Þrátt fyrir að VG í Norðausturkjördæmi leggi nú á djúpið Stenngrimslaust, jólatréslaust og Björnsvalslaus, má ganga að því vísu að það verði ekki með öllu Samherjalaust og fái kvótaaura og bakkaaura frá velunnurum til að halda úti grimmilegri kosningabaráttu. Hið stuttpilsaða jólatré á og líka sín góðu tromp upp í erminni; það gæti sem best gjört hosur sínar grænar fyrir Gunnari Smára og farið framboð fyrir hans sosialistaflokk; það gæti líka vaðið um borð í FRamsók og tekið þar fyrsta sætið, því lítið mun um varnir í seinni tíð í Framsóknarfjósinu fyrir norðan og austan. Svo ku Stjáni Júl frá Dalvík vera að hætta hjá Sjálfstæðisflokknum og opnast þar aldeilis fýsilegur möguleiki fyrir jólatréð atarna.


mbl.is Óli leiðir VG í Norðausturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband