Leita í fréttum mbl.is

Þá gaspra þeir ögn í lýðskrumsskyni

gogg3Hræddur er ég um að péníngalæknarnir kippi sér lítið upp við dulítinn grásöng lítilfjörlegra undanrennuunga úr hænsnakofa Stenngrims Johoð. Þeir vita sem er, sérgreinahetjurnar pénígaóðu, að garmar á borð við Proppa VG eru engi bógar til eins eða neins, liðónýtir og ómótaðir til alls. Ef sérgreinalæknir með höfuðið fullt af péníngahugsunum mundi mæta Proppa litla á götu mundi hann bara grípa í stélið á honum og kasta honum af hendi eitthvert langt út í buskann.

Og þó Proppi og önnur smámenni í VG séu að derra sig og ýlfra og ískra í lágum hljóðum núna, meina þeir ekkert með því, en af því það eru að koma kosningar finnst undanrennuungunum rétt að sýna örlítinn lit, þókt undanrennulitur sé, og gaspra ögn í lýðskrumsskyni til að varna því að verða ekki kosnir burt af þingi með stélfjaðrirnar milla lappanna. En auðvitað á að kjósa VG út af kortinu í haust, því þeir hafa sýnt sinn innri mann og hvað í þeim býr. Við viljum ekki slíkar hlandkollur undir fölsku flaggi inn á Alþingi meir.

Í hænsnakofanumEn það verður að taka á peningasjúku auðlæknunum með tveimur hörðum hrútshornum. Það getur varla gengið í okkar samfélagi að slík óútreiknanleg fól fái að vaða hér uppi, mun verri en nokkur sjúkdómur sem þeir þykjast geta læknað fyrir morð fjár. Og ef þessir karlar fá ekki þær upphæðir fjár sem þeir vilja úr sameiginlegum sjóðum landsmanna eða bara beint úr vasa hins veika, mega hinir fársjúku öreigar bara drepast heima hjá sér eins og sárasjúkar rottur í holu.


mbl.is Um ólögmæta hótun að ræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband