Leita í fréttum mbl.is

Hálfdán stjórnaði húsleitunum og í þeim fannst margt óvænt

pol2Af og til rýkur lögreglan upp eins og naðra og verður inn til fólks og snýr þar öllu á hvolf. Í morgun var Hálfdáni Varðstjóra og hans mönnum sigað út í húsleitir á höfuðborgarsvæðinu og vóðu þeir sem ein graðneyti inn í íbúðir hjá missaklausum borgurum. Hálfdán og þeir gengu hreint til verks, undir hinu fræga áróðursslagorði Sjálfstæðisflokksins, ,,göngum hreint til verks". Í einni íbúðinni fór húsmóðirin að gráta við komu varðsveitarinnar, en það háttarlag konunnar fór um of í taugarnar á Varðstjórnum og hann þreif til kerlu, lagði hana á kné sér og flengdi hana þar til hún hætti að grenja. Í annarri íbúð rak Hálfdán Varðstjóri húsráðanda á ranann vegna óviðeigandi athugasemdar hans um innrás varðsveitarinnar.

Í þriðju íbúðinni fundu lögreglumennirnir alþingismann, jakkafataklæddan skúnk í óræðu ástandi. Hálfdán spurði spurði hranalega hvurn djöfulinn hann væri að þvælast í þessum stað og svaraði alþingismaðurinn því til að hann hefði bara komið hér við til að fá sér molasopa áður en hann færi í þingið. Hálfdán Varðstjóri afréð undir eins að handtaka alþingismanninn og lét menn sína leggja hann í járn og bera hann út í lögreglubifreið. Í sömu íbúð fundu þeir einnig sérkennilegar töflur og duft í stauk sem stóð á eldhúsborðinu. Svo rifu þeir allt innanhúss sem hægt var að rífa og fóru með beittar ísaxir á þvottavélina, steikarofninn og uppþvottamaskínuna. Rafmagnstöflunni í forstofunni gjörðu þeir sömu skil, en þá fór rafmagnið af íbúðinni og raunar allri götunni og næstu götu við. Sá er hjó rafurtöfluna fékk yfir sig eldglæringar og rafstraum í sig og lagðist við það í gólfið.

dog3Í fjórðu íbúðinni fann Hálfdán Varðstjóri óvænt berrassaðan kaupsýslumann uppi í rúmi hjá húsmóðurinni, en bóndi konunnar var víðsfjarri, farinn í vinnuna að sögn. Þessi óþverrahjú lét Hálfdán fara með beint á lögreglustöðina og læsa þau inni, klæðalaus og hágrátandi. Í þessu húsi gjörði Hálfdán upptæk allrahanda kyndug kynferðisverkfæri í miklu magni, smyglbrennivín og og sjö byssur, riffla haglara og eina skammbyssu, sem eigandinn hafði auðsjáanlega notað til að aflífa hundtík, því litmynd af því atviki hékk í ramma uppi á vegg í búrinu. Í þessari matvælageymslu fannst líka dós af vítissóda og salmíakspíritus og þókti þá Hálfdáni bera vel í veiði því nú væri hann líklegast búinn að upplýsa hver framið hefði eiturmorðin frægu, sem lögreglan hafði gefist upp við fyrir þremur árum. Alls voru sextán manns handteknir og haldlaðgir í aðgerð Hálfdáns Varðstjóra í morgun, en nóg um það að sinni.    


mbl.is Fjórir handteknir og húsleit á sex stöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband