Leita í fréttum mbl.is

Hvað veður um aumingja Banza eftir allt ofbeldið sem hann hefir mátt þola?

kikkÞá hefir þeim tekist að hrekja aumingja Banza úr Viðreisnarflokknum, sem hann þó stofnaði fyrir braskarar og fólk með ESB-heilkennisárátturöskun. Svona eru laun heimsins og vonska fólksins og skjaldan launar kálfur ofeldið, - eða var það ofbeldið? - æ, það skiptir aungvu máli hvort heldur það er ofeldi eða ofbeldi, á því tvennu eru óglögg skil.

drunk2En nú hefir sem sé drotningu kúlulánanna lánast að láta gott af sér leiða og sparkað veslings Banza burt úr samfélagslífi braskaranna í Viðreisn. Þetta þykir sumum mikið gustukarverk. Auðvitað ber Banzi sig illa þar sem hann situr á rassmeiddi sínu í rennusteininum og kjökrar linnulaust. Fyrir honum liggur ekki annað en að skríða á fjórum fótum heim í Valhöllu Sjálfstæðisflokksins og gjörast aftur heill samherji Samherjana þar á bæ.

kol_1056183.jpgEkki skulum vér heldur gleyma þeim möguleika, að vel getur Banzi farið í kynjaleiðléttingu og stormað síðan í blábleikum kjól til liðs við Samfylkinguna eða VG og gjörst þar oddviti á framboðslista. Þetta er ugglaust freistandi tækifæri fyrir Banza, því hjá Samfylkingunni eða VG getur hann fundið sinn innri ESB- og braskarafrið. Og Samfylkingin er afar nýfrjálshyggjusinnað apparat, seisei, já, - og VG er vandalaust að svíkja allt sem þau þóktust áður standa fyrir, þetta er nefnilega soleiðis fólk, - ef fólk skyldi kalla. Ónei, það er ekki öll nótt úti enn fyrir honum Banza, hvort heldur hann skríður heim í Valhöllu eins og padda, elligar leggst undir knífinn og gjörist í framhaldinu efrimillistéttafémíníst í kjól og kvenbrók af Samfylkingar- eða VG-tegund. Þrautalendinginn fyrir vesling væri að gjörast málaliði hjá Pírötum og hefja baráttu fyrir kannabisnautn og últranýfrjálshyggju eins og þar hefir tíðkast.


mbl.is Gat ekki hugsað sér að sitja áfram í stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband