Leita í fréttum mbl.is

Borgarastyrjöld í Klaustri miðfótunga. Framsókn býr sig undir móttöku flóttamanna

x30Jú, það er skollin á borgarastyrjöld í þeim margklaustraða Miðfótungaflokki, það leynir sér. Eftir bænagjörðir og gleði á vonarhýrri brá í Klaustrinu hefir skálmöld og skeggöld tekið við og brátt munu hetjurnar skríða eins og vankaðar pöddur heit til fyrri heimkynja og lognast þar útaf, yfirbugaðir til líkams og sálar. Í dag slógust máttarstólpar Miðflokksins með berum hnefunum á mikilvægum tímamótafundi og kölluðu hverja aðra klausturdóna, klámkjafta og skítablesa; hið kristilega hugarþel klaustursins virðist hafa yfirgefið þessi átakanlegu guðslömb.

Í bardaganum í dag rak Þorsteinn Sæm soleiðis hramminn fyrir nasir Sigmundar ábóta, að hann kastaðist eins og heypoki fram á gang og Anna Kolbrún Kolbrúnarskáld hrópaði upp yfir sig í sífellu; Freyja eyja! Freyja eyja! Eyja treyja pissubleyja og stappaði niður öðum fætinum eins og geðstirð sauðkind. Það var nefnilega og sem sé fjör í klausturherbúðunum og auðséð að sá fyrrum virðulegi kastali Drotins riðar til falls.

Í Framsóknarfjósinu hefir gamla Framsóknarmaddaman gefið út skipun, þess efnis, að ráðsmaðurinn, húskarlarnir og griðkonur Fjóssins búi sig undir að taka á móti iðrandi syndurum, sem viðbúið sé að banki upp á þegar Brávallabardaganum í Miðfótungaklaustrinu lýkur með því herlega mannfalli, sem óumflýjanlega fylgir svo óvægnum hernaðarátökum. En gamla Maddaman er séð vel og útundan sér, því hún hefir einnig sett hjúum sínum fyrir að hleypa hvorki Ólávi Ísleifs né Karli Gauta ekki inn í Fjósið, ef þeir beiðast inngöngu, heldur kasta þeim beint í Fjóshauginn. Þá hefir sú gamla einnig mælt svo fyrir, að Beggó fái ekki inngöngu nema að undangenginni kynleiðréttingu, því slíkur tuddi kunni að verða til vandræða í Fjósinu ef hann fengi að valsa þar um ógeltur. 


mbl.is Átök innan Miðflokks vegna uppstillinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þú heldur áfram að toppa sjálfan þig!!

Sigurður I B Guðmundsson, 18.7.2021 kl. 10:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband