Leita í fréttum mbl.is

Báðir eru þeir vellandi lýðskrumsflokkar og vel mannaðir af hálfvitlausu fólki

xmEkki er á klausturábótann Sigmund Davíð logið, að hann á sér fáa jafningja í vitleysunni. Karlgreyið er einhverskonar klunnaleg útgáfa af bleyjubarni með gullskít í munninum og ruglaðir miðaldavofu. Þá er stráktuskan öndvegis lýðskrumari og jafningi Gunnarssmára í þeim efnum. Sennilega færi best á að Sigmundur og Smárarörið mundu sameina Miðfótungaflokkinn og Ekkisósíalistaflokkinn, því þessi tvö apparöt eiga sitt hvað sameiginlegt, því fyrir utan lýðskrumið eru þessi tvö flokksbrot þéttskipuð hálfvitlausu fólki; til dæmis er til þess tekið að drottning Miðfótunga og príórína, frú Vigdíshauks, og Gunnarsmári nota bæði sama póletiska tungumálið, þ.e. öskra og æpa að fólki og saka það um allra handa spillingu og lúmska stórglæpi, og skiptir þá litlu þótt aungin innistæða sé fyrir stóryrðunum og hávaðanum.

x48Og ekki er nóg með að Miðfótungar og Gunnarssmáraklíkan vel mönnuð af hálfvitlausu fólki, því þarna gefur að líta lukkuriddara og poletiska loddara í tonnavís, allt frá herra Þ. Saarý til Beggós í skrokknum. Ja, þetta eru nú ekki flokkar á flæðiskeri; báðir vellandi lýðskrumsflokkar, annar undir sauðargæru nýuppfundins sosialisma Gunnarssmara, hinn eins og skrímsli, monster, með hálsbindi og pípuhatt. Vel mætti og bæta Pírataskektinu við miðfótungssosialismus Sigmundar og Gonnsósmára til að úr mundi verða fyrirmyndar vitfirringasamkoma.

Það sem af er ágústmánuði hefir frú Ingveldur kvalist af innanmeini eftir að hafa drukkið volkablöndu við þorsta, en Kolbeinn maður hennar hafði áður laumað arseniki í volkann, því hann var staðráðinn í að koma eiginkonu sinni fyrir kattarnef,taka hana af lífi og myrða. Vissulega varð frú Ingveldur fárveik af eitrinu og spjó gríðarlega. Samt varð hún ekki svo máttfarin að hún gæti ekki veitt Kolbeini verðskuldaða ráðningu; hann liggur nú eins og hlandauli, mjög reifaður með súrefnisgrímu og ranghvolfandi augunum á Landspítalanum og syngur stanslaus milli þess sem hann gerir í rúmið af einskærri bölvun og mannvonsku. Þessar hörmulegu hrakfarir þeirra hjóna koma afskaplega illa niður á kosningaundirbúningi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. Frú Ingveldur hafði áætlað að blása kröftugum lífsanda í nasir Íhaldskérlínga og láta þær vaða eins og vitstola um víðan völl að boða arðræningjaguðspjallið. Nú er fram komið að ekkert verður úr þeim áformum og Íhaldskérlíngarnar munu sitja fram yfir kosningar með skuplur á höfði og hnussa ofan í gaupnir sér. Kolbeinn hefir um árabil stjórnað öllu sem orð er á gerandi, fyrir hönd gömlu geggjuðu Maddömunnar, á bak við tjöldin í Framsóknarfjósinu. Eins og gefur að skilja verður lítið um stjórn á kosningabaráttu húskarla og griðkvenna Maddömunnar að þessu sinni, því Kolbeinn ætlar ekki að láta sér batna fyrr en af kosningum afstöðnum.    


mbl.is Vill skila afgangi úr ríkissjóði til almennings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband