Leita í fréttum mbl.is

Framsóknarvírusinn herjar á togarakarla

xbHananú, missti gifturíki kaupfélagsstjórinn ekki nema ómengaðan framsóknarvírusinn um borð í togara kaupfélagsins. Það er fremur ógeðfellt. Sem kunnugt er, þá slapp kóvíðsskepnan út úr Framsóknarfjósinu þegar kaupfélagsstjórinn, Guðni og SigIngi voru að brasa einhvern andskotans drullujafning ofan í gömlu Framsóknarmaddömuna þegar hún var að reyna að ná heilslu eftir ofsafengna áquavítisneyslu. Þeir slátruðu sýktri afsláttarkú og hökkuðu hana niður og gáfu þeirri gömlu með þessum líka þrifaafleiðingum. 

Framsóknarkóvíðsvírussýkingin um borði í Málmey SK ku hafa lýst sér með skyndilegri og ofboðslegri sjóveigi upp úr þurru, þannig að farsælast þókti að slaka þeim niður í lest og geym þá þar. Vóru þeir ógn líkir því sem segir ljóði þjóðskáldsins: ,,Drukknir menn og krankar konur kvíuð voru skrans í lest". Þegar í land var komið voru sjúklingarnir lokaðir inni eins og glæpamenn og á þessari stundu er óvíst um afdrif þeirra í framtíðinni, en Fjóshaugurinn við Framsóknarfjósið stendur opinn og kringum hann tifa fyrrnefndir paurar, kaupfélagsstjórinn, Guðni og SigIngi.

En þar sem nútímakaupfélagsstjórar, ráðsmenn og húskarlar gömlu Framsóknarmaddömunnar eru allir innvígðir í helgustu vé Sjálfstæðisflokksins, Repúblíkana og Trumps, þá slá þeir úr og í hvort kóvíðurinn sé raunverulegur eða falsfréttamannatilbúningur og hækkandi lofthiti í veröldinni glópahysterý eða í alvörunni, nú eða kynfærarugl veruleiki eða tilbúningur. Með þessari snjöllu aðferð stendur Framsóknarfjósið öll veður af sér og gamla Framsóknarmaddaman fær legið örugg í sínu rúsi með áquavítisflöskuna undir koddanum. Og nú vantar aðeins herslumuninn upp á að Katrín Jakobsdóttir gangi í Framsóknarflokkinn og gjörist griðka í Fjósinu þeirrar gömlu, það mun vera síðasti millileikurinn fyrir innlimun VG í Sjálfstæðisflokkinn; mikið hugsjónafólk þar. 


mbl.is Sex skipverjanna með veiruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband