Leita í fréttum mbl.is

Endanleg lausn kynjaðra voðaverka

ing10Ljót er lýsingin af aðförunum á salerni skemmtitaðarins og heldur kynlegt, eða öllu heldur kynjað, að nokkur maður sækist eftir öðru eins af samborgurum sínum. Einnig erum vér ráðþrota gagnvart því hvurnig rétt sé að bregðast við soddan andskota, eins og þeim sem sagður er hafa gerst á náðhúsi gleðihúss í Reykjavík. Vér þekkjum öll söguna um drykkfellda manninn sem hugðist kaupa sér áfengisflösku utan dagskrár af sprúttsala. Þegar kom að því að borga kom í ljós að greiðslan var fólgin í að leyfa sprúttaranum að haf mök við sig, runnu tvær grímur á okkar mann. En svo herti drykkfelldi maðurinn upp hugann og lét slag standa. Síðar, þegar hinn ölkæri vinur vor sagði frá því sem gerðist þetta kvöld lauk hann alltaf frásögninni með þessum orðum: ,,Og hvað manninum gat þótt þetta gott" og var einlægt jafn undrandi. 

En víkjum aftur að dónalega illyrminu á klósettinu. Þeim ódámi og hans líkum ber að refsa harðlega fyrir þeirra illu verk, spurningin er aðeins hvurnig þeir skuli staffast. Í nýjum nútíma hagfræðibókum er langur kafli um ,,öldrunarhengingar" og fjallar um þjóhagslegan péníngaávinning af því að losna við gamlamenni sem fyrst af fóðrum svo þau stefni ekki þjóðarbúinu og ríkissjóði í voða. Ekki vitum vér hvort heppilegast lausnin gegn pervertaváinni sé gálgi og snara, en það segir sig samt sjálft að við klósettöfuguggum verður að bregðast við af festu.

svínÍ riti Árna Björnssonar, ,,Í hálfkæringi og alvöru", kaflanum um ,,refsingar á Íslandi", segir svo: ,,Eina dauðarefsingu í viðbót verður að nefna þótt hennar sé ekki getið í lögbókum, en það er kviksetning. Í hinum stuttorðu  annálum frá 14. öld eru nefnd fjögur dæmi um kviksetningu; ein vegna þess að maður hafði átt mök við dýr". Þarna þykir oss, sem vönd erum að virðingu vorri, sem lausnin á pervertavandmálinu sé hugsanlega fundin. Væri ekki gott ráð, að taka úr umferð voðamenni sem vaða um salerni og sæluhús, nauðgandi og nagandi, og troða þeim í til þess gerða trékassa sem grafnir eru í jörð, utangarðs að sjálfsögðu. Vér erum þess sinnis, eftir yfirlegu og íhugun, að þvílík góð aðferð muni fækka ástríðuglæpum, hvort heldur þeir eru framdir á salernum, í fjósbásum eða kóngsrekkjum, svo um munar, og einnig að öfuguggaháttur verði með leifturhraða úr sögunni á mettíma hjá oss á Íslandi, því aungvum dettur í hug að fremja kynjað óhæfuverk ef þeir vita að þeirra bíður kviksetning.   


mbl.is Ákærður fyrir að nauðga karlmanni á salerni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband