Leita í fréttum mbl.is

Þeir kunnu á svona jarðvöðla fyrir vestan og vissu hvað bar að gera

traktorÖ hö hö h höhö-haujj-ö. Þeir kunnu nú að meðhöndla svona jarðvöðla fyrir vestan í gamla daga. Það var dásamlegt að heyra sögurnar af því. Einn þrællinn klöngraðist upp á fjall á dráttarvélinni sinn, það var Massey Ferguson, og spólaði allt í tætlur þar sem hann fór um. Auðvitað misbauð heimamönnum þetta, - karluglan á Fergusoninum var aðkomugemsi sem hafði erft jörð eftir afa sinn og ömmu. Nú, Vestfirðingarnir höfðu aungvar vífilengjur á og hengdu bölvaðan sóðann eins og hund utan á súrheysgryfjunni hjá oddvitanum. En traktorinn gerðu þeir upptækan; gáfu hann fátækum útvegsmanni í kaupstaðnum. Einhverjir gerðu athugasemdir við að hræið af karlinum glataðist og aunginn vissi neitt hvað af því hefði orðið. Mörgum árum síðar fundust bein á botni súrheysgryfjunnar þegar hreinsað var upp úr henni.

Svo var þarna drykkfelld kona, sem stundaði útreiðartúra og hafi einlægt mörg hross til reiðar. Nótt eina að vori til þegar jarðvegur var blautur og gljúpur fékk kérlíng sér neðan í því og þaut svo á tíu hrossum fram og aftur sveitina með tilheyrandi jarðraski og eyðileggingu. Þá kom aftur til kasta oddvitans, sem mundaði riffilinn sinn út um eldhúsgluggann hjá sér og skaut kerlinguna. Hún þeyttist af baki og hafnaði klofvega á rakstrarvél og skondraðist þaðan niður í læk sem stíflaðist þegar. Um morfuninn sauð oddvitinn kerlínguna ofan hundana, sem gjörðu góðan róm af kræsingunum.

Reyndar féll oddviti þessi fyrir björg fyrir atbeina fjárhundsins Snata, en það er önnur saga. Á Barðaströndinni, þar sem þeir hengdu Svein heitin Skotta fyrir kynferðisafglöp og áreiti, þurftu þeir að taka til sinna ráða vegna umgengnirillra ferðamanna. Þetta voru andstyggileg hjón frá Austurríki. Þeir þarna fyrir vestan kölluðu bónda konunnar Hitleringsbjána og fullyrtu að hann væri áreiðanlega náinn ættingi austurrísks stjórnmálamanns sem komst til metorða í Þýzkalandi. Eitthvað hafi fólk þetta verið með skóflu uppi í fjallshlíð, en það gátu Barstrendingar ekki þolað og réðu hjónin af dögum með aðstoð dýraboga og þungra timburlurka. Stuttu síðar, þegar farið var að svipast um eftir þessu ólánsfólki frá Austurríki, kom í ljós að hjónin voru fornleyfafræðingar með heimild yfirvalda til fornleifarannsókna á Vestfjarðakjálkanum. 



 


mbl.is „Ótrúlegt að menn skuli gera þetta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband