Leita í fréttum mbl.is

Stórfólskuleg árás flugdólgs.

Einhvernveginn, hvernig sem á því stendur, leggst þessi frétt þann veg í mig, að þar hafi verið á ferð fyrrverandi eða núverandi áhrifamaður úr þingliði Sjálfstæðisflokksins. Eins og fólk gerir sér almennt ljóst, þá hneigjast miklar sjálfstæðisflokkshetjur til stórmennsku og dólgsháttar á flugferðum, ekki síst á leið heim frá Bandaríkjum Norður Amríku. Þessir kújónar virðast fá á heilann í háloftunum, að þeim séu allar leiðir færar; eigi allt og megi allt. Ég þekki konu sem lenti í flugvél með einu svona kvikindi og hefur ekki náð sér síðan. Það fór sem sé svo eftir allmikil átök, að sjálfstæðishetjan gerði sér hægt um vik og pissaði yfir vinkonu mína, sem gat enga vörn sér veitt gegn svo stórfólskulegri árás. Málið var auðvitað þaggað niður þar eð í hlut átti stórmenni og ítakamaður, en umfram allt virðingarverður máttrstólpi Flokksins góða.
mbl.is Lét ófriðlega í flugi og veittist að lögreglumönnum við handtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband