Leita í fréttum mbl.is

Bersynduga konan, bindið og karlmennskutáknið.

Þegar bersynduga konan litaðist um í hjónaherbergi Kolbeins og frú Ingveldar, varð henni ekki um sel. Hún lét sig þó hafa, að tína af sér leppana og settist að svo búnu á rúmið og beið átekta. Skömmu síðar kom Kolbeinn slagandi út af klósettinu, ennþá í hvítu skyrtunni með röndótta bindið út á skjön, enda búinn slaka nokkuð á hnútnum, en öldungis klæðalaus að öðru leyti. Þó bersynduga konan hafi séð ýmislegt um sína daga, hafði hún aldrei séð neitt jafn hlægilegt. Að hennar mati var samræmið milli hins skásetta bindis og karlmennskutákns Kolbeins á miðvígstöðvunum hreint með ólíkindum. Þessi óviðjafnalega sjón varð til þess að kona sló sér á lær og tók krampakennd bakföll af grenjandi skellihlátri. Við að sjá og heyra til konunnar, varð Kolbeinn ákaflega bilt við, snerist á hæli í herbergisdyrunum og hljóp dauðskelkaður úr húsi, eins og hann var á sig kominn, og faldi sig úti í bílskúr. Og þar beið hann þar til  hann sá á eftir hinni bersyndugu konu, hvar hún þrammaði alklædd niður götuna. Mun sannast mála, að í þetta skipti hafi Kolbeinn verið stálheppinn, því um það bil hálftíma síðar kom frú Ingveldur heim. En þá var nær runnið af Kolbeini og hann búinn að klæða sig í buxurnar og laga bindishnútinn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Hann Moði vinur okkar Moj var ekki eins lánsamur karl anginn hér um árið.

Níels A. Ársælsson., 6.10.2007 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband