Leita í fréttum mbl.is

Reiðarslag í hjónasæng

Það getur verið dýrt spaug fyrir aldraðar heiðurskonur að narra unga, fjörmikla stráka upp í til sín. Þessháttar framtak getur beinlínis verið stórhættulegt fyrir þær, eins og dæmin sanna. Nú hefur sú hryggilega frétt borist yfir heimsbyggina, að frú Adelfa Volpes í Argentínu sé úr heimi höll eftir að hafa fengið hastarlegt reiðarslag eftir snarpar bólfarir með tuttugu og fjögurra ára eiginmanni sínum. Þessi vofeiflegu endalok frú Adelfu ættu verða konum á hennar reki víti til varnaðar, þannig að þær hugsi sig vandlega um áður en þær bregða sér á brokk á vökrum graðfolum.
mbl.is 82 ára gömul brúður er látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband