Leita í fréttum mbl.is

Atli Gíslason flengdur með tilþrifum langs og þvers.

Í Silfri Egils í dag, tók Atli Gíslason þingmaður VG af öll tvímæli um hverskonar ruslahaugamatur stjórnmáflokkurinn Vinstrihreyfingin grænt framboð er. Þingmaðurinn hrasaði nefnilega í það kviksyndi að fara að ræða femíníska stefnu VG við Arnþrúði Karlsdóttur útvarpsstjóra Sögu og sat eftir með allt á hælunum og stykkin sín langt upp á bak. Það kom semsé fram í máli Atla, að VG er fyrst og fremst flokkur yfirstéttarfémínísta, sem ekkert vill með alþýðufólk, verkakonur og karla hafa. Satt að segja var ömurlegt að horfa upp á þessi býsn í beinni útsendingu, því ég hélt að persónur í innsta hring flokkseigendaelítu VG myndu ekki viðurkenna þessa skömm sína beint og milliliðalaust fyrir framan alþjóð. Fyrir mig var skammarlegur málflutningur og frammistaða Atla Gíslasonar í Silfrinu engin ný opinberun. Ég hef, eins og ýmsir vita, lengi reynt að benda fólki á, að VG er ekki brúklegur stjórnmálaflokkur fyrir raunverulega vinstrisinna, sósíalista, meðal annars vegna öfgafulls og veruleikafirrts yfirstéttarfémínísma hans. Hinsvegar var mjög athyglisvert, að verða vitni að því hvernig konan Arnþrúður Karlsdóttir náði að flengja þingmanninn, með tilþrifum, langs og þvers og velta honum upp úr því femíníska skítasvaði sem hann og flokkssystkyni hans hafa gert Vinstrihreyfinguna grænt framboð að.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Algjörlega ósammála í þetta sinn.  Atli var eini maðurinn með viti í umræddum umræðum og er ég þó ekki alltaf sammála Atla. 

Þórdís Bára Hannesdóttir, 18.11.2007 kl. 20:40

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég trúi því varla, Þórdís, að þér hafi líkað svör Atla, eða öllu heldur svarþurrð, þegar Arnheiður kvað upp úr með, að fémínísmi VG væri pólitík fyrir yfirstéttarkonur, já og yfirstéttarkarla eftir atvikum, en væri skítsama um konur í verkalýðsstétt.

Jóhannes Ragnarsson, 18.11.2007 kl. 20:46

3 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Það er rétt að láglaunafólk á ekki góða talsmenn í neinum flokki en Arnþrúður Karlsdóttir, verð að viðurkenna að ég læt yfirleitt á ,,silent" þegar hún lætur heyra frá sinni andans gift.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 18.11.2007 kl. 21:04

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já það er heldur óskemmtilegt fyrir Atla og VG að láta Arnrúði þessa tuska sig til eins og hverja aðra óknyttastráka. E

Jóhannes Ragnarsson, 18.11.2007 kl. 21:09

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já það er heldur óskemmtilegt fyrir Atla og VG að láta Arnrúði þessa tuska sig til eins og hverja aðra óknyttastráka. En burtséð frá Arnþrúði, að öðru leyti, þá veit ég að það sem hún sagði um VG og fémínísman er allt satt og rétt.

Jóhannes Ragnarsson, 18.11.2007 kl. 21:11

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þó að mér hafi orðið dálítið á varðandi nafn umræddrar konu, þá vitum við báðir Þorvaldur minn, að hún heitir Arnþrúður. En hvernig er það Þorvaldur, ertu alveg viss um að þú heitir Þorvaldur en ekki Þorveldur, eða jafnvel Þorhvalur?

Jóhannes Ragnarsson, 18.11.2007 kl. 21:26

7 identicon

Heil og sæl, þið öll !

Mikið andskoti heggur þú nærri sannleikanum; um hið eiginlega eðli VG, Jóhannes, í greinarkorninu hér að ofan, sem vænta mátti, ágæti Ennis fóstri.

Þórdís Bára og Þorvaldur ! Í hnotskurn; sem Jóhannes lýsir Atla og því standi öllu. Mér er nokkuð skylt; hvers lags erindi ætli Atli eigi, yfirhöfuð, á þing, fyrir okkur; hér í Suðurkjördæmi ? Hefi ekki orðið var við nokkra hans málafylgju, sbr. samgöngumálin, hvar á okkur, sem Norðlenzkum brennur Kjalvegur, m.a. Hvað þá önnur stærri mál, í héraðsins þágu.

Þórdís Bára og Þorvaldur ! Gaman væri, hneigðust þið, til sjóhundanna, félaga minna, í þungavigtarsveit Frjálslynda flokksins; til fulltingis okkur, sem hugnast lítt háskóla borgara lífsbjargirnar, sem aðra hortitti stofuhita samfélagsins Reykvízka ! 

Með beztu þjóðernissinna kveðjum, úr Árnesþingi / Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 23:01

8 identicon

Hvah..... nei hver andskotinn ! Jón minn Kristófer kominn; gagngert til þess að stríða okkur; blessaður hrekkjalómur getur þú verið; Jón minn.

Hver fjandinn, rekur þig, á fjörur Ennis höfðingjans; Jón Kristófer ?

Ætlar þó ekki; að fara að verja andskotans fjölmenningar lofrullu Atla lögmanns/þingmanns ?

Jæja; með beztu kveðjum, inn í næturþelið / Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 01:23

9 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Sínum augum lítur hver á silfrið Jón Kristófer. En getum við ekki verið sammála um að hin fémíníska stefna VG er langt komin með að eyðileggja þennan flokk til frambúðar auk tómlætis hans gagnvart verkafólki og verkalýðshreyfingu? Á sínum tíma kom ég að stofnum VG og ég fullyrði að fáum, ef nokkrum, sem þar komu að hafi órað fyrir því að hann myndi þróast með þeim hætti sem raun er á .

Jóhannes Ragnarsson, 19.11.2007 kl. 07:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband