Leita í fréttum mbl.is

Svavarsvæddur Ögmundur

 

,,Hún er með félagslegar hugsjónir sínar á hreinu á sama tíma og hún talar það sem kallað er mannamál. Allt þetta, andúð fólks á spillingu, löngun til að halda eignarhaldi á orkulindunum hjá þjóðinni og væntumþykja um hugsjónafólk, varð til þess að Svandís nýtur stuðnings í þeim mæli sem opin kosning hjá RÚV ohf leiddi í ljós."

Ofanritaðan þvætting fann ég á heimasíðu Ögmundar Jónassonar þar sem Ögmundur tekur sér einn ganginn enn fyrir hendur þá ósvinnu að mæra Svandísi nokkra Svavardóttur. Áður hefur Ögmundur látið sig hafa að skrifa oflofskenndar varnaðaragreinar um Svandísi og þá ekki síður þann kynduga ,,hugsjónamann" Svavar, föður Svandísar. Ég man eftir einni slíkri ritsmíð sem bar þá framúrstefnulegu yfirskrift: ,,Mér finnst Svavarsvæðingin góð" og fjallaði um þá óstjórnlegu hamingju í lífi VG þegar Svavar sendiherra og hans nánasta skyldulið komu stormandi inn í VG, löngu eftir að sá flokkur var stofnaður, og sögðu: ,,nú skal ég" og var umsvifalaust troðið innst á jötuna og sumt af því basli meira að segja sett á laun hjá flokknum.

En hvar var þetta ofurmannlega svavarssett með allar sínar meintu hugsjónir þegar Vinstrihreyfingin grænt framboð var stofnuð? Ójú, flest af því slekti var blessunarlega víðsfjarri, gott ef það var ekki í sinni ruglingslegu framsóknarmennsku eitthvað að kjá utaní Samfylkinguna. Því miður vildi Samfylkingin ekkert með hugsjónaþrungna svavarsvæðingu að gera, þannig að hinn vegvillti lýður ákvað að binda endi á eyðimerkurgöngu sína með því að troða sér inní VG - en ekki Framsóknarflokkinn, sem hefði verið mun betur við hæfi.

Hvað Ögmundur er að fara með því að mæra svavarsgengið og svavarsvæðinguna er mér hulið. En þó má vera að hann telji sig skulda þessu liði einhvern andskotann. Ef svo er, er það mesti misskilningur af hálfu Ögmundar. Honum væri nær að halla sér að raunverulegum samherjum sínum í pólitík, en að berjast við að verja mannskap sem er í raun óverjandi í ranni sósíalista.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband