Leita í fréttum mbl.is

Braut draumaprinsinn á vörubílsþaki

Hann má vera Guði þakklátur fyrir að hafa ekki ekki misst sjálfan sköndulinn af sér þessi drengfjandi þarna í Ástralíu þegar hann var að viðra sig framan í stelpugæsirnar þennan örlagaríka dag. Ég geri nefnilega ráð fyrir að fyrst hann var farinn að baða út handleggjunum hafi fleira fylgt handapatinu. Eins og dæmin sanna getur verið beinlínis stórhættulegt að vera kvensamur úr hófi fram, ekki síst á götum úti þar sem umferð er mikil. Þetta minnir mig á Didda vin minn þegar hann braut draumaprinsinn sinn við að lenda á vörubílsþaki eftir að hafa kastað sér nöktum út um glugga á annarri hæð þegar eiginmaður konunnar sem hann var að gleðja kom óvænt heim.
mbl.is Missti handlegginn eftir að vinka stelpum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband