Leita í fréttum mbl.is

Frímúraregla Svandísar og Villa

Það var ekki laust við að hægt væri að brosa að borgarfulltúunum frú Svandísi og herra Vilhjálmi í Kastljósinu áðan. Bæði voru sammála um að stýrihópurinn um Orkuveituna og REI hafi skilað af sér tímamótastórvirki í formi skýrslu um REI-málið. Eftir því sem ég komst næst, þá er skýrslan stórvirki af þeirri ástæðu að hún er sameiginleg afurð allra flokka í borgarstjórn, útþynnt og meinlaus. Það er engu líkara en þar hafi vélað um gáttir og garða samtryggingarhersveit borgarstjórnarflokkana þar sem vinir hafa hjálpað vinum þvert og endilangt á allar flokkslínur, hafi einhverjar slíkar línur verið til. Samkvæmt þjóðsögunni munu slík vinnubrögð í mjúku bróðurþeli alsiða innan Frímúarareglunnar. Og það var beinlínis hlálegt að verða vitni að undanbrögðum og flótta kjaftamaskínunnar, Svandísar stýrihópsstjóra, frá sínum fyrri málflutningi í árdaga REI-málsins, því þó hún reyndi eftir mætti að belgja sig út andspænis viðmælanda sínum, tókst henni enganveginn að breiða yfir pólitísku samtryggingarpestina sem leggur langar leiðir af tímamótastórvirki stýrihópsins.  

 


mbl.is Efast um umboð borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Við þennan pistil hef ég engu að bæta.

Greta Björg Úlfsdóttir, 7.2.2008 kl. 21:26

2 identicon

Segi það sama, og Gréta Björg !

Þú ert stórkostlegur, í myndrænum, en sönnum lýsingum, Jóhannes !

Með beztu kveðjum, út undir Enni vestur / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 21:29

3 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Þessi skýrsla er ekkert annað en kostnaður. Varpar ekki ljósi á neitt.

Er bara klúður. Skrifuð af þeim sem málið varðar.

Það finnst mér

Guðmundur Óli Scheving, 7.2.2008 kl. 21:29

4 Smámynd: Hagbarður

Eftir að hafa kynnt mér efni þessara skýrslu finnst mér hún vera hálfgerður kattarþvottur. Sammála þér Jóhannes.

Hagbarður, 7.2.2008 kl. 21:53

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég er ekki orðinn nokkur maður til átaka. En ég auglýsi eftir nokkrum þrekmiklum mönnum til að mæta í Ráðhúsið laust uppúr hádegi á morgun og henda þessum afglöpum út, öllum með tölu.

Þessir aular setja upp merkissvip og ræða um það við fréttamenn að af þessu verði að draga lærdóm!

Árni Gunnarsson, 7.2.2008 kl. 22:02

6 Smámynd: Halla Rut

Ég var hreint agndofa yfir þessum þrumum Svandísar í kvöld.

Ég virkilega hélt um tíma að hún væri yfir skítinn hafin.

Halla Rut , 7.2.2008 kl. 22:48

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

7.2.2008 : Vinstri græn í Reykjavík fagnar REI-skýrslunni

,,Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík haldinn 7. janúar 2008 fagnar nýútkominni skýrslu stýrihóps borgarráðs um málefni REI og Orkuveitu Reykjavíkur og þakkar formanni hópsins Svandísi Svavarsdóttur fyrir vel unnin störf. Niðurstöður og störf hópsins eru til marks um breytt og bætt vinnubrögð í stjórnmálum þar sem þverpólitískt samvinna er höfð að leiðarljósi til að ná fram niðurstöðu í alvarlegu og afar mikilvægu máli."

Brýnt er að tryggja tillögum hópsins farveg og að lærdómur verði dreginn af ferlinu öllu lýðræðinu og almenningi til góða.

Ég trúi því varla að félagsfundur VG í Reykjavík hafi lagt blessun sína yfir samtryggingarskýrslu frú Svandísar. Nær hefði verið að félagsfundurinn hefði gert súperpúmuna afturreka með sín frímúraraplögg. Spurningin er ekki lengur um hvað félagarnir, sem samþykktu meðfylgjandi tillögu, voru að hugsa. Spurningin er hvort þetta fólk hugasar yfirleitt nokkuð. Ja stórbrotin stjónmálabarátta atarna. Þvílikar lítilsigldar múgsálir.  

 

Jóhannes Ragnarsson, 8.2.2008 kl. 12:04

8 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Ertu viss Jóhannes? er virkilega engin von um heiðarleika þessa fólks eða að það vilji bætt vinnubrögð? voðalega er þetta sorglegt.  En eitt er víst að ofsalega er ,,ofurpúman" mælsk. Sannast að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.  Hún er foringjaefni hún Svandís.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 8.2.2008 kl. 13:06

9 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Maður var dæmdur í fimm ára fangelsi, þrátt fyrir að honum tækist ekki að drepa konuna sína.

Hvað er þetta með okkur Íslendinga og stjórmálamenn, er samtryggingin alger.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 8.2.2008 kl. 15:15

10 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Samtrygging í stjórnmálum er staðreynd og viðtölin við Svandísi og Vilhjálm í Kastljósinu vitnuðu ágætlega um slík vinnubrögð.

Því miður hef ég enga ástæðu til að treysta stjónmálamönnum þegar heiðarleiki er annarsvegar. A.m.k. tek ég orð og athafnir stjónmálamanna með miklum fyrirvara.

Þrátt fyrir ágætan glamranda er frú Svandís Svarsdóttir er ekki foringjaefni, svo mikið er víst. Stjórnmál snúast um meira en viðstöðulaust kjaftamal.

En hvað um það, í íslenskri pólitík er samtryggingin regla og undantekningarnar sorglega fáar. 

Jóhannes Ragnarsson, 8.2.2008 kl. 16:12

11 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

„Afstaða þeirra lá fyrir og þess vegna þótti ekki vera ástæða til þess að boða þá Vilhjálm og Björn Inga á fund okkar. Þeir höfðu talað skýrt um sína þætti málsins, bæði í fjölmiðlum og í borgarstjórn," sagði Svandís þegar Vísir spurði hana hvers vegna þremenningarnir hafi ekki verið kallaðir á fund nefndarinnar. Aðspurð um það hvers vegna ekki hafi verið talað við Hauk Leósson sagðist Svandís ekki vilja tjá sig. (Af visir.is)

Jóhannes Ragnarsson, 8.2.2008 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband