Leita í fréttum mbl.is

Bestíurnar á Sundyay Times eru hryðjuverkalýður

Það er ljóta skítablaðið þetta Sunday Times, að ráðast eins og hver önnur bestía á okkar ástkæru ilhýru fjálmálajöfrastofnanir Landsbanka og Kaupthing. Skilja þessir hryðjuverkamenn á breska Sunnudags Tímanum ekki né vita, að Landsbankakaupthingið eru einkavinavædd góðgerðarfélög, skipuð kristilegum framsóknaríhödum, sem gera vel við sjálfa sig og sína æðstu yfirmenn og kunna auk þess öðrum betur á vexti og vaxtavexti. Og víst er um það, ef hinum rætnu sóðaskrifum engilsaxneskra um okkar góðu björgúlfa linnir ekki, er ekki um annað að ræða en að beita hervaldi gegn heimsveldi hennar hátignar Elísabetar II bretadrottningar. Og það stríð munum vér íslíngar vinna.
mbl.is Frétt Sunday Times veldur óróa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ha,ha..skratti góður, eins og alltaf..

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 12.2.2008 kl. 11:56

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Takk fyrir Hafsteinn.

Svo er hér einhver Laissez-Faire ... humm ... Það er engin smá viðurkenning að þessháttar drjóli skuli væna mig um föðurlandssvik. Það er varla hægt að biðja um meira. Þó hefði mér þótt vænt um, ef hann hefði líka sakað mig um landráð.

Jóhannes Ragnarsson, 12.2.2008 kl. 20:56

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

...ég trúi honum alveg til að bæta í skammirnar, hann virðist vera mjög sár...fyrir hönd Björgólfa þá sennilega ...?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 13.2.2008 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband