Leita í fréttum mbl.is

Mun senda handrukkara á niðurníðsluþrjóta

stalinÞað er naumast uppi typpið á Vilhjálmi okkar Þorn Vilhjálmsyni í dag.

Hann var ekki svona helvíti brattur þegar hann var að reiast síðastliðið haust, lofsællar minningar.

Og nú ætlar hann sko að láta verkin tala svo um munar og það af stalínískri festu. Vilhjálmur er nefninlega semsé búinn að fá sexmenningana, Láfa F.(lista), Swandeesi Sendiherrans, Day Be Eggerts og fleiri með sér í lið á móti eigendum húsa í miðborginni. Og miðbæjarhúseigendur skulu aldeilis fá að kenna á því ef þeir hunskast ekki til að dytta að kofum sínum, sem sumir hverjir eru að falli komnir. Vilhjálmur er heldur ekki að fara í grafgötur með að hann, ásamt sinni hersveit, muni beita öllum tiltækum ráðum og brögðum til að koma vitinu fyrir verstu skussana í miðbæjarsamfélaginu. „Ef að einstaka húseigendur ansa ekki okkar óskum munum við beita öllum þeim úrræðum sem við höfum til að knýja þá til að gera það," sagði Vilhjálmur í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Ef ég skil þessi dýru orð rétt, þá kemur vel til greina hjá Vilhjálmi, ef allt þrýtur, að gera út sveit handrukkara til að berja óhýðna niðurníðsluþrjóta til hlýðni.

Ójá, það má nú segja, að Viljálmur borgarmálaráðsstjóri og verðandi borgarstjóri sé orðinn andskotanum ákveðnari í seinni tíð  og staðráðinn í að láta verkin tala með illu ef þau nást ekki fram með góðu.  


mbl.is Átak gegn niðurníðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Enda af kyni sem kennd er við æður.  Þetta var ljótt af mér, en ég læt það standa, mér til ævarandi háðungar og skammar.

Þú ert alveg hættur að kommenta á kommentin, finnst þér ekkert gaman að pikkhöggvast Jóhannes. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 27.3.2008 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband