Leita í fréttum mbl.is

Kauphallarhéðnar að sumbli

kapital8Ja, nú hafa kauphallarhéðnarnir aldeilis fengið sér ærlega neðaníðí áður en þeir fóru að gambla með bréfin sín í morgun.

Það er auðvitað ekki nema gott eitt að segja um, að umræddir héðnar hafi drukkið sig svo blindfulla í rauðabítið í morgun, að úrvalsvísitalan er þotin uppí hæstu hæðir. Það verður bara að passa að það renni ekki af köppunum svo þeir fái ekki timburmenn og úrvalsvísitalan hlunkist niður aftur. Það er altso ekkert gamanmál fyrir rottimbraðan kauphallarhéðinn, að fá illvíga úrvalsvísitölu beint ofaní skallann þegar neyðin er stærst - það gæti hreinlega steindrepið hann. 


mbl.is Mikil hækkun í kauphöllinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband