Leita í fréttum mbl.is

Ríðandi á mjólkurkú innan um gljáfexta gæðinga

kúkú2Mikið lán væri það fyrir oss íslendinga að eiga fleiri menn á borð við þennan Egil Gillz Einarsson. Hann gerir sér, ólíkt flestum löndum sínum, fullkomlega grein fyrir anda og alvöru Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Það er ekki grín, heldur mikið alvörumál, að íslenska þjóðin í heild sinni skuli misskilja þessa mikilsvirtu söngvakeppni; slíkt ástand minnir einna helst á hina mergjuðu talsmenn Samfylkingarinnar sem ætla að redda öllu milli himins og jarðar á Íslandi, að meðtöldu eilífu lífi fyrir alla þegna þjóðarinnar, með því að jarðsyngja Ísland inn í ESB.

Það er náttúrlega afleitt, eins og Egill Gillz bendir réttilega á, að senda óvinsæla hljómsveit með einn gamlan bakraddarsöngvara í pússi sínu til að halda uppi heiðri þjóðarinnar í Serbíu á þeim mikla degi sem evrópska sönvakeppnin fer fram. Þessháttar framferði er líkt heimskum manni sem færi á landsmót hestamanna ríðandi á mjólkurkú.

Framtíðin er sem sé ekki björt fyrir oss sanna, vitiborna íslendinga í eróvísíonsöngvamálum. Má vera að þjóðin vitkaðist í þessum efnum, ef Samfylkingunni tækist blessunarlega að draga hana inn í ESB. En því miður hefir fram að þessu gengið harla illa að hafa vit fyrir þeirr andstyggilegu þjóðarnefnu sem vér heyrum til; henni er víst margt annað betur gefið en að skilja tíðarandann réttum skilningi, hvað þá að velja kórréttar söngsveitir til að sigra í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.


mbl.is Skilja ekki Júróvisjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ha ha snilld

Jakob (IP-tala skráð) 11.5.2008 kl. 19:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband