Leita í fréttum mbl.is

Sóðaleg klámkerling

dirtÞað hljóta að vera mistök af hálfu yfirvalda að hleypa að hinni alræmdu klámkerlingu, Rutt Westbreima, inní landið. Og sú gamla ætlar ekki að sitja aðgerðalaus hér á landi; ónei, hún ætlar sem sé að gera sér lítið fyrir og fremja opinbera kynferðislífsvillu í Listasafni Reykjavíkur, ásamt einhverju hroðakvendi sem hún hefir í eftirdragi. Og til að bíta höfuðið af skömminni leiddu einhverjir ógæfumenn þennan blygðunarlausa kvenmann heim að Bessastöðum til forseta Íslands í dag! Fyrr má nú gagn gera í siðferðisbrestum og siðleysi.

Og hvar er fémínístafélagið nú? Ætlar það eðla félag að taka komu þessara klámkerlinga þegajandi og hljóðalaust? Ekki vil ég trúa því að svo komnu máli. 


mbl.is Kynlífsgjörningar Dr. Ruth
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Mér er svo brugðið, enda að verða jafn gömul og þessi kerling.  Ekki á ég að þurfa að vera hugsa um svona hluti þegar ég verð komin á hennar aldri.  Ég er svo gott sem búin að gleyma hvað þetta gengur út á.  Er þetta ekki Íslendingar borða SS pylsur.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 16.5.2008 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband