Leita í fréttum mbl.is

Sluppu við vist á fábjánahæli í Kanada

dansÉg er hræddur um að Færeyingarnir sem höguðu sér eins og fífl, með danstilburðum og öðrum ólátum á flugvellinum í Toronto, megi þakka sínum sæla fyrir að vera ekki teknir úr umferð og vistaðir á fjábjánahæli. En þar sem fárvirði geysaði og sennilega fullbókað á öllum vistheimilum fyrir svona fólk, sluppu Færeyingarnir við að komast undir mannahendur. Ef ég þekki yfirvöld Toroto rétt, hefðu þeir ekki tekið á dansfíflunum með neinum silkihönskum. Og ekki hefði stoðað fyrir Færeyingana að bera fyrir sig að þeir væru Færeyingar, torontoyfirvöld hefðu ekki tekið þessháttar fyrirslátt til greina. En því miður fór svo að lokum, að Færeyingarnir komust leiðar sinnar áður en lögreglan hafði höndur í hári þeirra. 
mbl.is Stigu hringdans í flugstöðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bumba

Ja Jóhannes, að þú skulir segja þetta. Þú kannt ekki gott að meta. Með beztu kveðju.

Bumba, 16.6.2008 kl. 12:37

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er fjarri mér að kunna gott að meta, það segir sig sjálft. En það er samt hroðalegt að horfa uppá Færeyinga þegar helvískur dansgállinn er á þeim, a.m.k. dettur mér alltaf vitlausraspítali í hug þegar ég sé þennan fjanda.

Jóhannes Ragnarsson, 16.6.2008 kl. 12:50

3 identicon

Já alveg hreint ótrúleg framkoma hjá fólki að gera gott úr slæmri aðstöðu og sýna af sér hamingju og lífsgleði... ef þetta hefðu verið Íslendingar þá hefðu þeir aldrei verið með slík fíflalæti heldur bara borið gæfu til að röfla í einhverju horninu þar til þeir gætu verið dónalegir við flugþjónana á meðan þeir skelltu í sig brennivíninu.

...désú (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 12:51

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, Désú minn, Íslendingar kunna að höndla tafir á útlenskum flugvöllum með þeim glæsibrag sem þeir eru kunnir fyrir.

Jóhannes Ragnarsson, 16.6.2008 kl. 12:53

5 Smámynd: egvania

Já það eru nú meiri ósköpin sem Færeyingar létu dynja yfir veslingsfólkið, þetta hefur bæði verið sjónmengun og hávaðamengun.

Hvernig er þetta orðið má ekki sýna lífsgleði og dansa og syngja sér til dægrastyttingar ég segi nú bara FLOTT FÆREYINGAR lifið og njótið lífsin

egvania, 16.6.2008 kl. 14:01

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú þekkir greinilega ekki Færeyinga, Ásgerður mín.

Jóhannes Ragnarsson, 16.6.2008 kl. 18:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband