Leita í fréttum mbl.is

Háskólarolurnar á Íslandi og stríðsglæpakvendið

Solla og RæsHeldur en nú meiri mannsbragur á háskólanemendum á Nýja Sjálandi en á Íslandi. Ekki flögraði að teprulegu háskólarolunum á Íslandi að reyna að handtaka illræðiskvendið Condomlessu Ræs þegar tækifæri var til í vor. Í frétt mbl.is er gerð tilraun til að draga úr alvarleika málsins með því að taka svo til orða, að ,,nemendurnir segi að Ræs sé stríðsglæpamaður" og láta þar með líta þannig úr að hún sé það ekki. Staðreyndin er hinsvegar að eiturpaddan Ræs er sannkallaður stríðsglæpamaður ekki síður en Radóvan Karadzic og aðrar viðlíka skepnur. Ef háskólastúdentum á Nyja Sjálandi tekst að grípa gæsina og koma henni bak við lás og slá er það tvímælalaust stórt skrefí átt til alþjóðaréttlætis. Það á ekki og má ekki ganga þannig fyrir sig, að óþrifnaðarfólk í valdastöðum heimsins fái að valsa endalaust og óáreitt um heima og geima með báli og brandi, kúgun, ójöfnuði og morðum eins og ekkert sé sjálfsagðara.

Vonandi tekst hásskólanemum á Nýja Sjálandi að framkvæma ætlun sína og koma Condomlessu Ræs undir mannahendur, sem ekki eru kvenmannshendur.   


mbl.is Vilja að Rice verði handtekin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Heyr! Heyr!

Einnig ef einhversstaðar næst í upphafsmanninn að pyntingunum; Donald Rumsfeld fyrrverandi stríðs- og innrásarmálaráðherra BNA sem var hálfu verri en Rice hefur ennþá náð að komast, ef hægt er að nota slíka samlíkingu. 

Hvað er verra en illt?

Kvðeja, Björn bóndi   LMN

Sigurbjörn Friðriksson, 25.7.2008 kl. 10:24

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

,,Fyrst er það vont, svo versnar það stöðugt og verður loks djöfullegra en orð fá lýst," ef ég vitna rétt í Magnús Þór ...

Jóhannes Ragnarsson, 25.7.2008 kl. 10:32

3 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Góður!  Rétt hjá þér.  Lengi getur vont versnað. 

Hjá Kananum var það í byrjun: "vont" og síðan hefur það bara "versnað" og nú orðið "djöfullegt".  Hve lengi getur "djöfullegt" orðið "djöfullegra"?

Ég held að Kondomlessa Ræs kunni ráð við því. 

Kveðja, Björn bóndi  J<

Sigurbjörn Friðriksson, 25.7.2008 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband