Leita í fréttum mbl.is

Frímann leikari lítillega skrámaður eða hérumbil dauður?

landroverÞær eru bæði fróðlegar og skemmtilegar fréttirnar af heilsufari Frímanns leikara eftir að hann þeysti á bifreið sinni útí skurð eins og drukkinn Íslendingur. Meiðsl Frímanns ku spanna allan skalann, allt frá fáeinum skrámum uppí þá herfilegu útreið sem einugis Maðurinn með ljáinn kann að meta. Af fréttasendingum að dæma, mætti ætla að fjölmiðlar hafi sammælst um að gera sem mest stólpagrín að óförum Frímanns leikara, og lesendum þá líka í leiðinni. Allt um það, þá vona ég að Frímann hafi meiðst sem minnst og hann eigi eftir að leika mörg hlutverk enn, því hann er sannarlega frábær leikari, það verður aldrei af honum skafið.
mbl.is Gerði að gamni sínu við björgunarmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband