Leita í fréttum mbl.is

Metfé af eðalstofni

kú1Hann er greinilega metfé af eðalstofni þessi Óskar Bergsson og verðugur arftaki Ólafs F. sem hækja fyrir stórbrotinn borgarstjórnarflokk Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Það er ekki ónýtt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að eiga slíkar hækjur vísar eins og hverja aðra varahluti þegar á þarf að halda. Og ekki er nóg með að Íhaldið í Reykjavík, svo heilsulaust sem það er, hökti við framsóknarhækju því handan við Fossvoginn, í Kópavogi, haltrar ástmögur steinsteypunnar, sjálfur Gunnar I., um gráar götur, studdur af samskonar amboði og félagar hans í Reykjavík. Nú er það svo, að Framsóknarflokkurinn er kominn í sömu stöðu og geirfuglastofninn sem íhaldsmenn sinnar tíðar útrýmdu fyrir fullt og allt með lurkum og grjótkasti. Þessa válegu stöðu er Framsóknarmönnum fyrirmunað að skilja, líkt og geirfuglinum forðum, og er nú svo komið að fátt getur komið í veg fyrir að útför þessa fyrrverandi félagshyggju- og samvinnuflokks verði auglýst formlega innan tíðar.  
mbl.is Samfylkingin hafnaði nýjum Reykjavíkurlista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband